16.01.1950
Neðri deild: 30. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 984 í B-deild Alþingistíðinda. (1243)

11. mál, togarakaup ríkisins

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Af því að þetta er frh. 2. umr., vildi ég aðeins vekja athygli á þeim brtt., sem fram hafa komið í sambandi við þetta mál, og sérstaklega þá brtt. frá hv. 2. þm. Reykv. um, að ríkisstj. heimilist að lána bæjar- og sveitarfélögum 85% af ábyrgðarverði togaranna og nota til þess m.a. það lán, sem ríkisstj. er með þessum l. heimilað að taka, o.s.frv. Ég vil benda hv. þd. á það, að lítið stoðar að koma fram með slíkar till. sem þessa, þó að það tíðkist enn þá mjög á Alþ. að gera ráð fyrir, að ríkið geti fengið lán í þessu skyni eða hinu. Það er svo komið, að slíkir möguleikar eru raunverulega ekki fyrir hendi. Bankarnir hafa ekki laust fé, opinberar stofnanir hafa ekki laust fé, og almenningur kaupir ekki lengur ríkisskuldabréf. Það er öllum kunnugt, að mikið er í umferð af ríkistryggðum skuldabréfum, sem engir kaupendur eru að eins og sakir standa. Ég vildi því einungis vekja athygli á því, að það er í raun og veru alveg tómt mál að tala um slíkar ábyrgðir sem þessar, meðan ástandið er eins og raun ber vitni um.