03.02.1950
Neðri deild: 40. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 985 í B-deild Alþingistíðinda. (1248)

11. mál, togarakaup ríkisins

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Vegna þess orðalags, sem er á minni brtt. á þskj. 224, þar sem í henni er gengið út frá því, að þetta frv. sé orðið að lögum fyrir 29. janúar s.l., þá getur sú brtt. ekki komið undir atkv., eins og hún er orðuð. Hún var borin fram það snemma, að ég gerði þá ráð fyrir, að hún gæti komið til atkv. En ég verð að taka hana aftur við þessa umr. og bera hana þá fram aftur við 3. umr.