10.02.1950
Neðri deild: 44. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 993 í B-deild Alþingistíðinda. (1266)
11. mál, togarakaup ríkisins
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Út af fyrirspurn þeirri, sem hv. 2. þm. Reykv. beindi til ríkisstj. um það, hvað hún hugsi sér að gera við togarana, er því fljótsvarað, að þann stutta tíma, sem ríkisstjórnin hefur setið, hefur hún ekki haft tíma til þess að sinna þessu máli sérstaklega. Fyrrv. hæstv. ríkisstjórn var búin að gera samninga um þessa togara og tryggja greiðslu kaupverðs þeirra. Um hitt, hverjir geti og vilji kaupa togarana, þá er það að segja, að það hefur ekki verið tekið til endanlegrar athugunar.
Út af brtt. á þskj. 298 um það að tryggja bæjarfélögum norðanlands lán fyrir 95% af kaupverði togaranna, þá vil ég taka það fram, að það er ekki ástæðulaust að benda á þá staðreynd, að flest af þeim bæjarfélögum, sem keyptu eldri togarana, hafa komizt í veruleg vandræði við rekstur þeirra, svo að ríkissjóður hefur verið skuldaður fyrir hátt á aðra millj. króna vegna togara, sem að verulegu leyti voru í eign bæjarfélaga. Í öðru lagi má benda á það, að hjá sumum af þessum bæjarfélögum hefur útgerðin gengið svo erfiðlega, að ekki hefur verið unnt að greiða mannakaup, svo að þau hafa komizt í stórskuldir vegna kaups skipverja. Þetta er ekki sagt sem ásökun á viðkomandi bæjarfélög, heldur til þess að benda á það, hve miklir erfiðleikar eru á því að reka þessi skip og hve mikil áhætta því fylgir. Það getur verið gott að hafa skipin vegna atvinnu í einstökum bæjarfélögum, en það verður líka að taka tillit til þeirrar ábyrgðar, sem samfara því er sett á herðar litlum bæjarfélögum, því að eitt svona skip getur tapað upp undir 200 þús. krónum í einni veiðiför. Að vísu má segja, að öll togaraútgerð sé að komast í þrot, en það er líka þannig, að sum af þessum bæjarfélögum og einstaklingum, sem reka togarana, eru komin í stórkostleg vandræði með að reka þá og standa við smáskuldbindingar vegna þeirra. Þess vegna er það mjög vafasamur greiði við bæjarfélögin að veita þeim svo mikil hlunnindi, að þau geti keypt skipin án þess að leggja út mikið fé, því að áhættan af rekstrinum hvílir þó alltaf eftir sem áður á bæjarfélögunum.
En út af brtt. á þskj. 296, þá hefur hv. flm. væntanlega gert sér grein fyrir því, hvernig sá hluti á að greiðast, sem stafa kynni af lækkuðu gengi, sem enginn veit á þessari stundu, hvort verður, en þessi till. sýnir þá meira ábyrgðarleysi, heldur en gert hefur verið hér á Alþingi áður. Innkaupsverð togaranna er um 40 milljónir króna, og ríkissjóður ætti þá að taka á sig þessa kvöð, ef genginu yrði breytt, og það er ekki víst, að það yrði neitt smáfé. Ef það ætti að gera þetta, þá verður að gera einhverjar tillögur um það, hvernig eigi að mæta því. Ég legg því til, að þessi till. verði ekki samþ., af þeim sökum, sem ég hef nú nefnt.