13.05.1950
Neðri deild: 100. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1008 í B-deild Alþingistíðinda. (1313)
15. mál, Sementsverksmiðja
Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):
Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð til að bera af mér sakir, út af því, hve málið hefur legið lengi í n. Það var alls ekki af áhugaleysi eða skilningsleysi mínu sem flm. og sem nm., að málið lá svo lengi í n. Og ég hygg, að hið sama megi segja um aðra hv. þm., sem þetta kemur við. En að eðlilegum hætti þá biðum við með að afgreiða málið frá n., þangað til gengið hefði verið til fulls frá þeim stórkostlegu fjárhagsmálum, sem lágu hér fyrir þinginu og þurftu afgreiðslu, því að það var ekkert viðlit að afgreiða þetta mál. sem hér liggur fyrir, fyrr en séð væri, hver áhrif það hefði á kostnað við að stofnsetja sementsverksmiðjuna, hvernig fjármálin væru afgreidd. Þess vegna dróst að afgreiða málið frá n. En svo, eftir að sýnt var, hvernig fjármálunum var skipað, var ekki haldinn fundur í n. í tvo mánuði og n. gat ekki komið því við að afgreiða málið á þeim tíma.