15.05.1950
Neðri deild: 101. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1012 í B-deild Alþingistíðinda. (1318)
15. mál, Sementsverksmiðja
Pétur Ottesen:
Það er ekki nýtt fyrirbrigði, sem hér kemur fram og hv. þm. Hafnf. hefur sérstaklega gerzt forgöngumaður fyrir, að halda uppi endalausum athugunum og rannsóknum í stað þess, að hafizt sé handa um framkvæmdir. Þó vil ég segja, að fyrr hafa farið fram mjög gaumgæfilegar athuganir og undirbúningur þess, er hér er um að ræða. hvað er búið að gera mjög miklar athuganir um, hvar heppilegast sé að reisa verksmiðjuna hér á landi. Fyrstu athuganir beindust í þá átt, að heppilegast væri að reisa sementsverksmiðju á Vestfjörðum, og var það vegna þess, að þar væri hagkvæmast að ná í hráefni þau, sem þarf til að vinna úr sement. Vegna þeirra rannsókna voru fyrstu l. um sementsverksmiðju sett. Þó er því þar eigi slegið föstu, að verksmiðjan verði reist á ákveðnum stað. Við nánari athuganir kom í ljós, að aðrir staðir mundu hagkvæmari til þessara hluta, bæði um öflun hráefnis, og eigi síður var álitið, að verksmiðjunni yrði fenginn staður, þar sem hún liggur vel við samgöngum og dreifingu framleiðslunnar um landið. Þessar rannsóknir hafa farið fram, eins og hv. þm. Mýr. hefur skýrt hér frá, og liggja skjallega fyrir, svo að hver maður getur fengið að kynna sér þær. Þær hafa leitt í ljós, að upprunalegar till. í þessu voru ekki heppilegar, og niðurstöður bæði um efnisöflun og dreifingu sementsins hafa leitt í ljós, að hagkvæmara er eins og hér er lagt til. En svo sýnist þetta liggja fyrir sem eigi þurfi frekari rannsókna með um þetta. Ég vil benda á, að niðurstöður hafa leitt í ljós, að varðandi skeljasandsöflun hér í flóanum er staðarvalið hið heppilegasta, sem hægt var að gera. Nú þegar hefur verið byrjað að kanna sandlög í flóanum. Hafa tvær ferðir verið farnar í því augnamiði, og sýnir sú könnun, að menn hafa eigi gert sér rangar hugmyndir um gæði skeljasandsins. Verður rannsóknum um þetta haldið áfram til að kanna víðari svið. Þetta er aðalefnið, sem þarf til sementsframleiðslu. Annað efnið er svo allmikið af basaltsandi. Þessi sandur er mjög mikill í höfninni á Akranesi, við vegginn á væntanlegri verksmiðju. Þriðja efnið er kísilsandur. En annað efni í stað þess er líparít. Það hefur fundizt í Hvalfirði eða skammt frá þessum stað. Gengið hefur verið úr skugga um við rannsóknir, að þetta allt saman er raunverulegt, hvað efnið snertir, magn og öflun, og sú efnagreining, er farið hefur fram með tilliti til notkunar. Hér verður þess vegna að álíta. að mál þetta hafi verið fullkomlega undirbúið, og eftir er þá að athuga aðstöðuna við að reisa verksmiðjuna. Þetta hefur verið athugað um Akranes, þar sem verksmiðjunni hefur verið ákveðinn staður, og einnig sá staður við Reykjavík, sem álitinn var, að til greina gæti komið. En eins og hv. þm. Mýr. benti á, hefur hinum ákjósanlegasta stað þegar verið ráðstafað til annarra framkvæmda. Er og aðstaðan á Akranesi hagkvæmari, en hún hefði verið í Geldinganesi. Ég geri ráð fyrir því, þó að athuganir fari fram suður í Hafnarfirði, — og þangað má rekja orsakirnar til þess, að hv. þm. Hafnf. er að gera aths. við frv., — að þá mundi sú athugun eigi leiða til hagkvæmari niðurstöðu eða breytinga á þeim ákvörðunum, sem hafa verið teknar. Það er vitað, að innan hafnarsvæðisins í Hafnarfirði hefur landinu verið ráðstafað. Ef verksmiðjan yrði sett þar, mundi þurfa að gera mikil mannvirki í sambandi við verksmiðjuna, að því leyti, sem dreifing sementsins færi þar fram á landi. Ég býst við, að e.t.v. séu þau rök ríkari fyrir brtt., — þótt ég sé ekki að gera neinum getsakir og ég þekki hv. þm. Hafnf. að því að vera raunhæfan mann, — að honum hafi verið legið á hálsi við bæjarstjórnarkosningar og e.t.v. alþingiskosningar líka, að hann hafi eigi verið nógu kröfuharður í því, að Hafnarfjörður kæmi til greina sem aðsetur sementsverksmiðju. Ég veit, að það er ástæða til þess, en ég get eigi varizt því að halda, að hann af dómgreind sinni og verkfræðiviti hafi komizt að annarri niðurstöðu. — Ég skal svo geta þess út af staðsetningu verksmiðjunnar á Akranesi og skuldbindingum, að þar er til ákveðinn staður undir hana. Á bærinn helming af lóðinni undir hana og geymslur undir sement og önnur efni. Það, sem á vantar, er í eigu einstakra manna, og bærinn er þegar búinn að festa kaup á því landi, sem nauðsynlegt er undir verksmiðjuna. Nemur upphæðin, sem þarf fyrir lóðina, 238.000 kr. Á henni er aðeins eitt fjós, sem eigandinn metur á 15 þús. kr. Gerir hann þá kröfu, að sér verði greidd sú upphæð fyrir að rífa fjósið og flytja það burt. Bæjarstjórn Akraness leit svo á, að henni bæri skylda til að inna þetta af hendi vegna samninga í sambandi við staðsetningu verksmiðjunnar. Auk þessa er eitthvað fleira, sem verið er að semja um og raunar er gert til samræmis við skipulagsuppdráttinn um hagnýtingu þessara lóða. Þessu er þá svo háttað, að Akranesbær hefur gert það, sem í hlut hans hefur komið, lagt lóð til mannvirkisins, sem þegar er tiltæk nú til byggingar á henni. Með tilliti til hagnaðarvonarinnar af þessu í sambandi við hitt, ef flytja þarf sement frá útlöndum, má gera ráð fyrir því, að hæstv. ríkisstj. og Alþ. láti eigi dragast úr hömlu að gripa hvert tækifæri, sem er fyrir hendi, til að hrinda þessu nauðsynlega fyrirtæki í framkvæmd. Enn fremur hafa verið gerðar ráðstafanir til hagnýtingar á vatni, er þarf til verksmiðjunnar. Stendur fyrir dyrum að víkka aðfærslupípur að kaupstaðnum, og verður sjálfsagt vikið að því bráðlega. Mun það mál eigi standa í vegi fyrir því, að verksmiðjan verði reist og fái vatn. Er áætlað, að þetta verði látið þannig af mörkum, að vatnið sé tekið hjá hraðfrystihúsinu og dælt inn í verksmiðjuna. Á það að vera nægilegt. Verði búið að stækka vatnsveitukerfið, eins og vel má vera, þá verður undinn bugur að því, að það komi þessum rekstri að gagni, því að þá getur verksmiðjan fengið vatn beint úr vatnsæðakerfi kaupstaðarins. Ég vil aðeins benda á það, að það hefur allur undirbúningur farið fram á Akranesi í sambandi við þessa staðarákvörðun. Og ég sé ekki, að þetta mál standi þannig, að ástæða sé til þess af Alþ. að fara að gera að engu ákvarðanir ríkisstj. í þessum efnum, þar sem engar líkur eru til þess, að frekari rannsókn í þessu máli mundi breyta neitt staðarákvörðuninni. Og ég geri ekki ráð fyrir því, að sú rannsókn leiddi í ljós, að tiltækilegt þætti nú, frekar en áður, að setja verksmiðjuna niður í Reykjavík eða suður í Hafnarfirði. Hitt eru miklu raunhæfari vinnubrögð í þessu mikla nauðsynjamáli, að láta sitja við það, sem orðið er, og hefjast handa um að hrinda verkinu í framkvæmd, á grundvelli þeirrar rannsóknar, sem fyrir liggur. Hv. þm. Hafnf. hefur í sambandi við till. sína um frekari rannsókn málsins borið fyrir sig samþykkt, sem gerð var í verkfræðingafélaginu, en eins og hv. þm. Mýr. sagði, þá er sú samþykkt fram komin fyrir agitation í því félagi af hálfu þess manns, sem upphaflega vildi staðsetja verksmiðjuna á Vestfjörðum, og það þótt síðari niðurstöður hafi sýnt, að það hefði orðið hið mesta óhappaverk, bæði í sambandi við efnisútvegun þar og ekki síður í sambandi við flutninga á sementinu frá Vestfjörðum. Það er ekki mjög langt síðan þessi samþykkt var gerð og löngu eftir að þær niðurstöður voru fengnar, sem leiddu til þess að staðurinn var ákveðinn á Akranesi. Ef verkfræðingafélagið hefði séð einhverja sérstaka meiningu í þessu frá öðrum sjónarmiðum séð, þá má gera ráð fyrir, svo framarlega sem þar eru vakandi menn, að þeir hefðu hafizt handa um þetta miklu fyrr. Árangurinn af þessari agitation varð líka sá, þrátt fyrir það, að í því félagi eru 130 menn, og þrátt fyrir það, að tveir fundir voru um þetta mál haldnir, þá tókst ekki að fá á þann fund, sem ályktunina gerði, nema tæplega 1/5 hluta félagsmanna og það þótt vitað væri, að ályktunina ætti að gera á fundinum. Og af þessum 1/5 hluta félagsmanna, sem á fundinum mættu, tókst ekki að fá fullan helming til að greiða atkv. með ályktuninni, sem hv. þm. hefur notað hér sem grundvöll undir þessa brtt. Tólf menn greiddu atkv. með henni, en nokkrir á móti, og aðrir sátu hjá. Þetta er ákaflega veikur grundvöllur til að nota hann sem ástæðu fyrir brtt. hv. þm. Hafnf., og þetta er hrein og bein yfirskotsástæða og það því fremur, sem vitað er, að þetta var ekki til orðið af áhuga fyrir velferð málsins, heldur fyrir agitation af hálfu þess manns, sem varð undir í viðskiptunum í sambandi við staðarákvörðun verksmiðjunnar og hafði upphaflega viljað láta setja hana niður á Vestfjörðum. Ég held þess vegna, að Alþ., sem hefur falið ríkisstj. þetta mál og þar á meðal, að fengnum upplýsingum, að ákveða verksmiðjunni stað, geti ekki talið sér sæmandi að gera að engu ákvarðanir ríkisstj. og þá sérstaklega, þegar ekki liggja sterkari rök fyrir því en hér hefur verið sýnt fram á og þar sem líka málið er tekið upp nú fyrst og fremst fyrir gagnrýni. sem hv. þm. Hafnf. kann að hafa orðið fyrir við tvennar nýafstaðnar kosningar, hvað það snertir, að hann hafi ekki haldið Hafnarfirði fram í þessu efni, og svo fyrir agitation minni hl. í verkfræðingafélaginu, en ávöxtur hennar er svo þessi fárra manna ályktun, sem hér á að nota fyrir grundvöll undir þetta. Ég verð þess vegna að vænta þess, að Alþ. láti við svo búið standa í þessu máli og fari nú ekki að tefja framgang þess með því að fela verkfræðingafélaginu, sem hefur sýnt svona ákaflega lítinn áhuga fyrir þessu máli, eins og þessi ályktun bezt sýnir og sannar, frekari rannsókn í málinu en hér er orðin, en slá þá á frest frekari aðgerðum í málinu. Ályktunin var samþ. með 12 atkv. gegn 9, og ættu þá þessir þrír menn að skapa þann sterka grundvöll til þess að fara að hefta eða a.m.k. tefja framgang þessa máls og koma þar á nokkrum glundroða og slíta þar með þann framkvæmdaþráð, sem hafinn er til uppbyggingar þessarar verksmiðju. Ég álít mjög misráðið af Alþ. að gera slíkt, og vil ég mjög mæla því gegn, að menn séu þannig að leika sér með jafnstórt velferðarmál og þetta mál áreiðanlega er.