15.05.1950
Neðri deild: 101. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1018 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)
15. mál, Sementsverksmiðja
Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):
Herra forseti. Ég vil svara hv. síðasta ræðumanni því, að það er ekki ákveðið, að sementsverksmiðjan verði byggð á þessu ári, og það er meðal annars vegna þess, að vegna þeirra atburða, sem gerzt hafa frá því að l. voru sett, hefur til þessa ekki legið fyrir ábyrgðarheimild fyrir nægilega háu láni til verksmiðjunnar. Það er allra manna mál, sem um þetta hafa fjallað, að það sé sjálfsagður hlutur að byggja þessa verksmiðju, þó að taka þyrfti allt fé að láni til hennar, vegna þeirra gjaldeyrissparandi möguleika, sem hún veitir. Og ég veit, að hafizt verður handa um það, strax þegar búið er að ganga frá ábyrgðarheimildinni. Ég er sammála hv. síðasta ræðumanni um það, að við staðsetningu slíkra fyrirtækja þurfi að athuga, hvert er þeirra eðli og hvernig áhrif það hefur í þjóðfélaginu. Þetta hefur verið gert rækilega í sambandi við sementsverksmiðjuna, og niðurstaða þeirra manna, sem um þetta hafa fjallað, er sú, að með því að hafa sementsgeymslu hér í Reykjavík og flytja sementið laust frá verksmiðjunni og blása sementinu, sem færi til Reykjavíkur og nágrennis hennar og á Suðurlandsundirlendið, inn í slíka geymslu, þá væri hægt að framleiða sementið í heild, þó svo að flutningskostnaður kæmi til greina, ódýrar með því að staðsetja verksmiðjuna á Akranesi, en í Reykjavík. En þetta er einmitt hugsað þannig, að sementið sé flutt laust frá verksmiðjunni til Reykjavíkur og í sementsgeymslu þar og dælt þar í geyma, með sáralitlum tilkostnaði. Ég skal geta þess í sambandi við það, sem rætt hefur verið um aðstöðuna á Akranesi að öðru leyti, að eins og allir vita, þá eru þær hráefnanámur, sem fundizt hafa hér í flóanum, nær Akranesi, en öðrum stöðum. Akranes er eini staðurinn, þar sem rafmagn er til, til framleiðslunnar, þótt byrjað verði á næsta ári. Aftur á móti er ákveðið að vinna að því, að áburðarverksmiðjan komi hér í nágrenni Reykjavíkur, og hún er svo raforkufrek, að það er nauðsynlegt að nota aðallega afgangsraforku, sem til fellur hér, til þeirrar framleiðslu, en að öðru leyti mun sú orka, sem með þarf, fást við næstu virkjun Sogsins. Ég get getið þess, að Hafnarfjörður kom til athugunar í sambandi við staðsetningu sementsverksmiðjunnar, en aðeins lega hans frá Sviðinu er það verri og siglingin lengri og dýrari, en frá Akranesi, að það hafði mikið að segja.
Botnlag flóans hefur nú verið kannað með nýjum vélum, fengnum frá Svíþjóð. Það voru gefnar upplýsingar unz, að við mundum geta notað þennan sand og dælt honum upp, ef botnlagið væri 1/2 metri. Nú hefur þetta verið rannsakað, botninn skoðaður og botnlagið hefur reynzt 21/2 metri af fínasta kalksandi. Ég vil aðeins benda á þetta af því, að það eru alveg nýjar upplýsingar.
Ég verð að segja það, eins og hv. þm. Borgf. sagði, að mér finnst hv. þm. Hafnf. gera of mikið úr ályktun verkfræðingafélagsins, eins og til hennar var stofnað. Það orkar alltaf tvímælis um undirbúning allra mannvirkja, og ekki sízt svona stórra, og jafnvel þótt verkfræðingafélagið athugi þetta, þá er hætt við, að þeirra niðurstöður orkuðu tvímælis, og þá þyrfti að láta aðra rannsaka það. Það hefur ekki sérstaklega verið borið undir atkv. þeirra, en þeir hafa fylgzt með þessu máli frá byrjun.