15.05.1950
Efri deild: 107. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1020 í B-deild Alþingistíðinda. (1331)

15. mál, Sementsverksmiðja

Atvmrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Ég vildi nú mælast til þess, að málið fengi að fara til 2. umr. án þess að það færi til n. Skal ég vera reiðubúinn við 2. eða 3. umr. að svara fyrirspurn hv. þm. Barð., um. hvort ekkert verður gert, sem bindur staðsetningu verksmiðjunnar við Akranes, áður en þing kemur saman í haust. En ef hv. þm. telja yfirlýsingar mínar ekki nægilega skýrar, þá geta þeir auðvitað krafizt þess, að n. fjalli um málið. En slíkt gæti haft í för með sér, að málinu yrði stefnt í tvísýnu, vegna þess, hve skammur tími er til stefnu.