13.05.1950
Neðri deild: 100. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1044 í B-deild Alþingistíðinda. (1388)

164. mál, lækkun tekjuskatts af lágtekjum

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. Fjhn. leggur til, að þetta frv. verði samþ. þó að vísu sumir hv. nm. hefðu frekar þá skoðun, að fara bæri þá leið að hækka persónufrádráttinn. — En það er eitt atriði í þessu frv., sem nm. ber ekki saman um. Við tveir nm., ég og hv. 2. þm. Reykv. (EOI), við teljum, að markið, sem sett er þarna fyrir lágtekjum, sé allt of lágt. Við viljum samt ekki fara mjög langt í okkar brtt., en teljum, að þeir, sem hafa 2 þús. kr. á mánuði eða minna, þeir eigi undir öllum kringumstæðum að fá að njóta þessara ívilnana sem lágtekjumenn. Það mun vera um marga verkamenn t.d. að ræða, sem hafa laun þarna á milli 20 þús. kr. og 24 þús. kr. Og þó að við flytjum brtt. með þessum hætti, að við miðum við 24 þús. kr. tekjur sem hámark lágtekna í þessu sambandi, þá teljum við samt, að markið fyrir það, hvað megi teljast lágar tekjur, sé töluvert hærra en við höfum sett hér í brtt. Ég vil þess vegna leyfa mér að afhenda hæstv. forseta svo hljóðandi skrifl. brtt.: „Í stað „20 þúsund“ á tveim stöðum í fyrri málsgrein 1. greinar komi: 24 þúsund.“ Þessi brtt. er aðeins frá tveim mönnum í n.