16.05.1950
Efri deild: 109. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í B-deild Alþingistíðinda. (1401)

164. mál, lækkun tekjuskatts af lágtekjum

Steingrímur Aðalsteinsson:

Herra forseti. —Ég skal eigi tefja málið eða umr. um það. Val ég aðeins leyfa mér að taka upp brtt., sem flutt var í hv. Nd., en felld þar, þess efnis, að í stað „20 þúsund“ á tveim stöðum í fyrri málsgr. 1. gr. komi: 24 þúsund. — Ég held, úr því að viðurkennd er ástæða þess að létta skattabyrðar þeirra manna, sem eru svo tekjulágir, að þeir eiga fullt í fangi með þá dýrtíð, sem er í landinu, að þá séu eigi frambærileg rök fyrir því að hafa upphæð þessa lægri, en 24 þúsund kr. Ég tel mig ekki þurfa að færa fram sérstök rök fyrir þessu, en ég vil leyfa mér að flytja hér skriflega brtt. þess efnis, að í stað 20.000 kr. á tveimur stöðum í 1. gr. komi 24.000 kr., og vil biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir þessari till.