13.05.1950
Neðri deild: 100. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1052 í B-deild Alþingistíðinda. (1413)
165. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús o.fl.
Sigurður Guðnason:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr. — Þetta mál hefur áður verið í þ., og kemur það dálítið fram, að verið er að deila um fjárhæð, sem hefur verið tekin af þjóðleikhússjóði, sem eigi var talinn þurfa hennar með. Alþ. hefur hér gengið á bak orða sinna með því að taka skemmtanaskattinn til annarra þarfa, áður en menn vissu, hvort þjóðleikhúsið kynni að þurfa hans með. En þar sem þeir deila um þetta, gat ég ekki látið hjá líða að minnast á hvíldarheimili verkamanna.
Við opnun þjóðleikhússins voru haldnar ræður um hið stóra afrek á sviði listarinnar. Við værum svo stór þjóð, að við hefðum byggt yfir listina. En sömu menn hafa ekki hugsað um það, að fyrir 2–3 árum voru menn. búnir að ákveða það að svipta þjóðleikhúsið reifunum, áður en það var í heiminn borið. Getur vel verið, að ég hafi þessa skoðun vegna þess, að ákveðið var, að alþýða Reykjavíkur skyldi ekki fá inni í félagsheimilunum.