16.05.1950
Neðri deild: 105. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1077 í B-deild Alþingistíðinda. (1437)
165. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús o.fl.
Ásmundur Sigurðsson:
Af því að ég skrifaði undir nál. meiri hl. n., þar sem því var lýst, að ég hefði þá afstöðu um málið, að ég væri á móti því að samþ. frv. óbreytt, en hins vegar teldi ég rétt að veita ríkisstj. heimild til þess að koma þessu á réttan kjöl, vil ég gera grein fyrir afstöðu minni með nokkrum orðum.
Mér virðist helzt til mikið úr því gert á þingi nú, hvað þetta sé stórkostlegt vandamál, sem hér liggur fyrir. Og mér virðist það vera vantraust á ríkisstj. að telja það vera ómögulegt að leysa þetta öðruvísi en með því að samþ. þetta frv. Fjárl. hafa verið samþ. upp á 300 millj. kr. Þar eru sparaðar 30 millj. kr., sem lagðar voru á á síðasta ári. Þar er enn fremur bætt nokkrum milljónum við, svo að fjárl. eru um 40 millj. hærri, en á síðasta ári. — Og svo eru þessi vandræði með þjóðleikhúsið, þar sem um er að ræða þrjár millj. kr., skuld við þessa verktaka, að mér skilst, sem ekki er búið að greiða þeim. Og það lítur helzt út fyrir, eftir ræðum manna, að hæstv. ríkisstj. verði að segja af sér, ef henni er ekki fengið þetta fé upp í hendurnar. Mér finnst það vantraust é. ríkisstj., hvernig þetta mál hefur verið útfært hér á þingi. Og ef hæstv. ríkisstj. getur ekki leyst úr þessu máli, sem hér er rætt um, án þess að fá þennan hluta skemmtanaskattsins, þá hygg ég, að henni muni verða enn erfiðara að leysa önnur meiri vandamál, sem vafalaust munu koma fyrir, áður en margir mánuðir e:u liðnir.
Í hverju eru, þessi vandræði fólgin, sem hér er rætt um í sambandi við þjóðleikhúsið? Það liggja fyrir ljósar upplýsingar um það, að þessar rúmar þrjár milljónir kr., sem hér er um að ræða, eru óumsamdar skuldir. Og þær á að greiða með þessum hluta af skemmtanaskattinum, og mun þó þurfa allt að átta ár til þess að greiða þessar skuldir upp. Nú liggur fyrir, að það verður að semja um þessar skuldir og fá bráðabirgðalán til þess að greiða þær. Og það er haft á orði, að ef þessar skuldir verða ekki greiddar mjög bráðlega, verði hægt að ganga að húsinu og heimta það boðið upp. Og þá liggur augljóst fyrir, að ekki er hægt að bíða í átta ár með það, að skuldin sé greidd, því að þá verður búið að selja það á einhverju af þessum átta árum. — Nei, það verður að greiða þessa skuld nú. Og deilan er um það, hvort það á að endurgreiða lán, sem þyrfti til að greiða þessa skuld með, á átta árum með því að taka til þess þennan hluta af skemmtanaskattinum, sem hér er rætt um, eða hvort á að greiða þetta með öðrum útgjöldum ríkisins á annan hatt. Þetta er aðalatriði málsins, sem hér er um að ræða. Þess vegna finnst mér hér gengið nokkuð langt, þegar í það er látið skina, að þetta sé svo stórt vandamál fyrir ríkisstj., að hún geti ekki leyst það á nokkurn annan hátt en þann, sem lagt er til í þessu frv. Og ef svo er í raun og veru, held ég, að illa gangi henni með erfiðari málin.
Þegar þetta mál var rætt í menntmn., þá kom m.a. mjög sú skoðun fram hjá hv. þm. A-Sk., að hækka mætti skemmtanaskattinn. Ég var á móti því þá og er á móti því enn. Hins vegar lagði ég það til málanna, að það ætti að gefa stjórninni heimild til lántöku, til þess að koma þessu á fastan grundvöll, og síðan kæmi það til greina í sambandi við fjármál ríkisins á hverjum tíma, hvernig ætti að greiða þessi lán eins og önnur lán, sem á húsinu hvíla, sem eru meiri en þessi upphæð, sem hér er um að ræða í frv. að koma fyrir.
Ég tek undir með þeim mönnum, sem halda fram, að það sé mjög óaðgengilegt að taka þennan hluta skemmtanaskattsins, fyrst á annað borð er búið að ráðstafa honum eins og gert hefur verið. Og í því sambandi vil ég minna á, að ég held, að það hafi fyrr verið gert að taka skemmtanaskattinn til annars, en leikhússins, og ekki til ákveðinna hluta eins og hér er gert, heldur beint í ríkissjóð, til almennra þarfa ríkisins. Og ef honum í þessi ár, sem hann hefur verið látinn renna þannig, hefði verið beint í þjóðleikhúsið, þá hefði verið búið að byggja það fyrir stríð, og það orðið gróðafyrirtæki á stríðsárunum. Það má því segja, að ríkissjóður skuldi þjóðleikhúsinu þessa upphæð. Vitanlega væri sú upphæð, sem farið hefur beint í ríkissjóð af skemmtanaskattinum, ef reiknuð væri saman, minni að krónutölu en nú mundu vera hliðstæðar tekjur, en hins vegar meira virði hver króna þá. Og hefði mátt byggja fyrir þann skemmtanaskatt þjóðleikhúsið og ljúka því. — Ég er ekki á móti þjóðleikhúsinu. Ég gleðst af því, að það er komið upp. Og ég tel, að það sé ríkisstjórnarinnar að leysa úr þessu máli nú eins og öðrum og meiri vandamálum, sem koma fyrir og allir vissu, að mundu koma fyrir. Og ég fæ ekki skilið, hve mikið er úr því gert, að það sé ómögulegt að leysa þetta á nokkurn annan hátt en þennan, sem til er tekinn í frv. Mér sýnist það liggja ljóst fyrir, að það hlýtur að verða að taka bráðabirgðalán til þess að greiða með þessar lausaskuldir. Og þá sýnist mér, að það geti verið mál seinna að leysa úr því, hvernig eigi að leysa það endanlega, og að það sé þá eðlilegasta lausnin, eftir forsögu þessa máls, að það, sem þarf til þess að borga þessar lausaskuldir, sé tekið beint inn á fjárlög sem aðrar greiðslur ríkisins.