16.05.1950
Neðri deild: 105. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1085 í B-deild Alþingistíðinda. (1441)

165. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús o.fl.

Jörundur Brynjólfsson:

Ég greiddi atkv. með þeirri till., sem hæstv. menntmrh. bar fram, því að ég taldi hana koma á meira jafnvægi gagnvart þeirri löggjöf, sem um þetta efni fjallar, milli félagsheimilanna og þjóðleikhússins, og þar sem á því er mjög brýn nauðsyn að koma betri skipan á fjárreiður þjóðleikhússins, vildi ég vinna það til að greiða fyrir því, að þetta mætti takast. Nú horfir málið hins vegar miklu verr við, en þar sem þetta er 2. umr. og ekki loku fyrir það skotið, að leiðrétta megi nokkuð frá því, sem nú er ákveðið í 1. gr. frv., þá mun ég þó ekki með atkv. mínu bregða fæti fyrir nokkra leiðréttingu þjóðleikhúsinu til handa, og þess vegna segi ég já, í trausti þess, að samþykkt verði við 3. umr. brtt. við þessa gr., sem gengur í sömu átt og brtt. hæstv. menntmrh., sem felld var hér áðan.