17.05.1950
Efri deild: 114. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1094 í B-deild Alþingistíðinda. (1469)
165. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús o.fl.
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Ég hef engu við það að bæta, sem ég sagði um brtt. á þskj. 814, en ég sé, að í d-lið l. brtt. kemur fram misskilningur, vegna þess að meiningin var, að skipt væri til helminga hluta lestrarfélaga og kennslukvikmynda, eins og það var samþ. í hv. Nd. Ég vil þess vegna leyfa mér að bera fram brtt. um það, að í stað þess, að 2/3 hluti skuli renna til lestrarfélaga og 2/3 hlutar til kennslukvikmynda, þá komi 1/2 hluti í hvorn stað.