17.05.1950
Efri deild: 114. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1095 í B-deild Alþingistíðinda. (1473)

165. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús o.fl.

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Ég skal viðurkenna, að það er hálfgert neyðarúrræði að hækka skemmtanaskattinn til þess að ná þessum tekjum. En ég vil í því sambandi uppIýsa, að álagið á kvikmyndasýningar hér í Reykjavík, ef þessi skattur verður að l., er 5–15 aurar á sæti, 5 aurar á almenn sæti og 15 aurar á dýrustu sæti, og það má kannske segja, að álagið sé ekki mjög tilfinnanlegt.

Hvað snertir viðtækjaverzlunina, þá kann vel að vera, að það sé langt sótt að fara þangað til þess að taka upp tekjur fyrir leikhúsið. Hins vegar er rekstur útvarpsins ekki háður tekjum viðtækjaverzlunarinnar, þannig að hér er ekki verið að veikja rekstur útvarpsins með þessu. Þetta eru tekjur, sem renna í einn sjóð, sem að vísu er gert ráð fyrir, að gangi til þess að safna í byggingarsjóð útvarpsins, sem nú er kominn upp í 5 millj. kr., en er, eftir því sem ég bezt veit, allur í útlánum. Ég skal lýsa yfir, að gefnu tilefni, að það er ekki meining mín eða ríkisstj. að hækka verð á viðtækjum til þess að ná hærri tekjum en ella í því augnamiði, sem hér er að stefnt. Um tekjur, sem af þessu geta runnið, er ekki gott að segja. Á fjárl. er áætlað, að tekjuafgangur af rekstri viðtækjaverzlunarinnar verði 156.000 kr. Þetta fer að sjálfsögðu mjög mikið eftir því, hvernig aðstaðan verður fyrir viðtækjaverzlunina að fá innflutning á viðtækjum; það hefur gengið stirðlega á þessu ári, hversu sem úr kann að rætast seinni hluta ársins. Tekjur viðtækjaverzlunarinnar hafa þess vegna verið misjafnar frá ári til árs, eftir því hve mikill innflutningur er á tækjum. En ég hygg að þegar á allt er litið, þá þurfi ekki að gera ráð fyrir því, að þær tekjur, sem af þessu fást, verði minni, en áætlað er í fjárl.