17.05.1950
Efri deild: 115. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1096 í B-deild Alþingistíðinda. (1478)

165. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús o.fl.

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég skal ekki tefja málið og ekki rekja allan þess sorgarferil og ósannindi, sem okkur þm. hafa verið sögð af þeim mönnum, sem þessu stjórna. En af því að mér virðist, að hér eigi að leika sama leikinn, þá langar mig til að spyrja hæstv. ráðh., í fyrsta lagi: Hvað kostar þessi breyt., sem eftir er af byggingu þjóðleikhússins. Það er gert ráð fyrir því, að allar þær tekjur, sem hér er verið að afla, eigi að renna til þess að borga byggingarskuld þá, sem nú er. Með hverju á að borga það, sem eftir er að gera? Ég skal ekki fara inn á þann svikaferil, sem farinn hefur verið í þessu máli í fleiri ár á Alþ.