16.12.1949
Efri deild: 16. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1113 í B-deild Alþingistíðinda. (1529)
41. mál, skipun læknishéraða
Forseti (BSt):
Ég vil taka það fram út af ummælum hv. 2. þm. Árn., að ég lít svo á, að í a-lið 2. gr. frv. sé ótvírætt átt við Sandvíkurhrepp eins og hann var áður, en skipting hans fór fram. Þess vegna get ég ekki litið svo á, að það sé nein efnisbreyting, þó að Selfosshrepp verði bætt þarna inn i, og ef ekki væri um aðra breyt. að ræða, þá teldi ég ekki neina ástæðu til þess að enda málið aftur til hv. Nd., þótt Selfosshrepp verði bætt inn í, og ekki sízt þar sem læknishéraðið á að heita Selfosshérað, og liggur það þá í augum uppi, að Selfosshreppur hlýtur að vera í því héraði.