19.12.1949
Efri deild: 18. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1115 í B-deild Alþingistíðinda. (1535)

41. mál, skipun læknishéraða

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég get ekki vel skilið þá afstöðu hv. n. að vilja ekki mæla með þessari brtt. minni. Hún á rót sína að rekja til þess, að 1944, þegar Brekkuhéraði og Hjaltastaðahéraði var slegið saman í Egilsstaðahérað, var það vilji landlæknis, að þegar um stór héruð væri að ræða, sem komið hefðu sér upp sjúkrahúsi, skyldu vera þar tveir læknar. Breytingin 1942 var gerð vegna þess, hve erfitt var að fá lækna í hin smærri héruð, en jafnframt var heimilað að ráða 4 lækna með fullum launum, svonefnda fjórðungslækna, sem skyldu starfa í læknislausum héruðum, unz þangað fengjust nýir læknar, og jafnframt til að koma í stað héraðslæknanna, þegar þeir væru í leyfum, en þegar áðurnefnd breyting var gerð á Fljótsdalshéraði,1944, var bætt við 5. lækninum, en þá jafnframt gert ráð fyrir, að Egilsstaðahérað sæti fyrir honum. En nú hefur orðið sú raun á, að aðeins einn fjórðungslæknir hefur fengizt, Lárus Jónsson, sem hefur starfað á Norðurlandi undanfarin ár. En þegar fengizt hafa læknar að Egilsstöðum, hafa þeir sjaldnast verið þar til lengdar, og með brtt. minni er ekki farið fram á annað en það, að 5. fjórðungslæknirinn, sem raunar á ekki að vera fjórðungslæknir, sé eingöngu á Egilsstöðum, en sé ekki notaður sem vikari fyrir lækna um alla Austfirði. Og hljóðar till. mín svo: „Egilsstaðahérað skal ganga fyrir öðrum héruðum um aðstoðarlækna, enda hvílir eigi á þeim aðstoðarlækni kvöð sú um þjónustu í öðrum héruðum, er um ræðir í lögum nr. 52 1942: Læknir þessi yrði þá einn af þessum 5 uppbótarlæknum, en væri undanþeginn þeirri kvöð að vera vikari fyrir aðra lækna hingað og þangað, en yrði eingöngu á Egilsstöðum, eins og gert var ráð fyrir við breytinguna 1944, þó að framkvæmdin yrði önnur. Ég vil því leggja fram þessa brtt. og skil ekkert í hv. n. að vilja ekki flytja hana, því að hún tefur málið aðeins um einn dag. Þá skil ég ekki í því, að n. skyldi ekki vilja flytja brtt. landlæknis, því að það verður að vera hægt að ganga að l. um læknaskipun á einum stað, en nú eru þau hingað og þangað. Það hefði náttúrlega þurft að gera miklu fleiri breytingar á þessum málum, og eins og ég sagði áðan, var reynt að samræma skoðanir manna í þessum efnum, og í því skyni var skipuð milliþn. í málinu, en hún hefur ekki enn skilað áliti. Nú er þessum málum svo háttað, að til eru héruð eins og Borðeyri, þar sem enginn læknir er starfandi, en samt sem áður eru greidd þangað full læknislaun, og rennur helmingur þeirra til læknisins á Hvammstanga, en hinn helmingurinn rennur í sjóð heima í héraðinu. Sama má segja um Suður-Snæfellsnes, þar sem helmingur læknislaunanna rennur til lækna í næstu héruðum og hinn helmingurinn í sjóð í héraðinu. Eins er um Hesteyrarhérað, sem var áður fjölmennt hérað, en telur nú aðeins um 60 manns í Sléttuhreppi. Þar er helmingur launanna greiddur til læknisins á Ísafirði, en hinn helmingurinn í sjóð. Sama má segja um Borgarfjarðarhérað, sem var gert lítið með sameiningu læknishéraðanna á Fljótsdalshéraði, svo að þar eru nú aðeins um 300 manns. Það þarf því að athuga öll l., sem þetta varðar, og athuga, hvort ekki er rétt að hafa fleiri en einn lækni í þeim héruðum, þar sem eru sjúkrahús og héruðin eru stór. Þetta þarf allt að athuga vel, en ég get fallizt á, að því verði slegið á frest í bili, en ég mun leggja fram brtt. mína og vona fastlega, að hún verði samþ. Hún tryggir, að aðstoðarlæknirinn verði ekki tekinn frá Egilsstöðum. 1942 var ákveðið, að vikararnir skyldu vera 4, og 1944 var þeim 5. bætt við og jafnframt tekið fram, að hann skyldi vera á Egilsstöðum.