11.12.1949
Efri deild: 12. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1126 í B-deild Alþingistíðinda. (1580)

32. mál, vátryggingarfélög fyrir fiskiskip

Atvmrh. (Jóhann Jósefsson):

Ég er reiðubúinn til þess, ef það mætti vera fullnægjandi fyrir hv. 4. landsk. þm., að gefa þá yfirlýsingu hér í d., að ég flyt þetta mál hér og bið um þessa sérstöku undanþágu með þeim skilningi, að tekið verði við henni, ef hún fæst, með því skilyrði, að samvinnan hjá samtryggingu Bátaábyrgðarfél. Vestmannaeyja og Samábyrgðarinnar og endurtrygging þess hjá Samábyrgðinni verði útfærð á nákvæmlega sama hátt og hefur verið síðan Samábyrgð Íslands á fiskiskipum var stofnuð. Það hefur alltaf verið og verður að vera að baktryggja hjá Samábyrgðinni, það er sjálfsagður hlutur. Ég gef þessa yfirlýsingu á þeim forsendum og tel Alþ. laust allra mála, ef vikið yrði frá því af félagsins hálfu.