19.12.1949
Neðri deild: 17. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1138 í B-deild Alþingistíðinda. (1638)

76. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Eysteinn Jónsson:

Það eru aðeins fáein orð út af því, að hæstv. atvmrh. talaði um, að eitthvað hefði farið fram hjá mér í þessum efnum, og þá helzt það, að það væri hægt að hólfa þetta þannig niður, að söluskatturinn hefði verið ætlaður til þess að standa undir niðurborgunum innan lands og kæmi fiskábyrgðinni ekkert við, og þess vegna væri hægt að taka þetta svona út úr. Í þessu sambandi vil ég ekki viðurkenna, að neitt hafi farið framhjá mér. En ríkisstj. hefur staðið þannig að þessu máli, að ekki er hægt við þessar umr. að skoða það allt í heild, af því ekki eru till. um neitt annað, en þennan eina þátt. Ég vil einnig benda á það í þessu sambandi, að dýrtíðarsjóði eru með dýrtíðarlöggjöfinni ætlaðar 36 millj. kr. í söluskatt, 22 millj. kr. af tolltekjum ríkissjóðs og 15 millj. í öðrum gjöldum, eða samtals 70–80 millj. kr., sem þessum sjóði er ætlað. Af þessu sjáum við, að málið er ekki einfalt, það er aðeins þáttur úr miklu stærra máli, og ég get ekki fallizt á, að það sé eðlilegt að slíta það úr samhengi eins og hér er gert. Ég sé hins vegar annmarka á því að láta þetta falla niður um stundarsakir, en það mun yfirlýst, að þetta sé framlenging um stundarsakir, meðan verið er að fjalla um þetta í heild, og sést þá, hvað af því verður látið gilda áfram og hvað ekki. Með þessu er ég ekki að spá neinu um það, að hægt sé að afnema söluskattinn, ég læt það liggja milli hluta. Það verður að skoða það mál í einni heild, því að það er ekki hægt að framlengja um lengri tíma þessi gjöld án þess að málið sé tekið upp í heild, enda engin ástæða til þess, þegar þingið situr allan janúarmánuð og getur þá haft í hendi sér, hvernig þessu verður háttað framvegis.