20.12.1949
Neðri deild: 19. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1139 í B-deild Alþingistíðinda. (1642)
76. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég hef borið fram brtt. um það, að framlenging þessa skatts nái ekki nema til 1. marz í staðinn fyrir til ársloka samkvæmt frv. Þessa till. hef ég haft á þennan veg með tilliti til annarrar brtt. við það frv. um bráðabirgðafjárgreiðslur, sem áðan var á dagskrá. Ég geri ráð fyrir, fyrst fordæmi eru um að fjárl. séu afgr. eftir febrúarlok, þá sé ekki vissa fyrir, að afgreiðsla náist á þeim tíma. Ég geri á sama hátt ráð fyrir því, að allsherjar yfirlit um afkomu ríkissjóðs á árinu eða till. um fjáröflun yfirleitt verði ekki komnar á afgreiðslustig fyrr en um sama leyti, fyrir 1. marz. Það verður vafalaust að ákveða um fiskverðið sjálft og ábyrgð ríkissjóðs fyrir þann tíma, en mér segir svo hugur um, hvernig svo sem því verður háttað, að það verði ekki búið að gera fullnægjandi till. um fjáröflun, hvorki til þess né annars, í sambandi við fjárl. þess árs, fyrr en í fyrsta lagi í febrúarlok. Af þessum ástæðum hef ég gert þessa till., og ég geri ráð fyrir, að um bæði frv. sé frekar farið of stutt en of langt í því að gefa ríkisstj. og Alþ. hæfilegan tíma til þessa starfs.