20.12.1949
Neðri deild: 19. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1142 í B-deild Alþingistíðinda. (1649)
76. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Ég hef ásamt hv. 5. þm. Reykv. leyft mér að flytja skriflega brtt. við brtt. á þskj. 150 frá hv. 9. landsk., þannig að aftan við „1950“ á 1. gr. bætist: að undanteknum liðunum d og í í 30. gr., sem falli niður. En d-liðurinn nær til innflutningsgjalda af bifreiðavarahlutum og bifreiðavélum. Enda þótt vitað sé, að ríkissjóður megi ekki við því að missa miklar tekjur, held ég, að ekki verði komizt hjá að létta af þessu gjaldi, sem hefur komið mjög hart niður á framleiðslunni í landinu og er sérstaklega tilfinnanlegt, þegar um þunga bíla er að ræða. Ég vona því, að hv. Alþ. samþ. þessa till., um leið og ég tel sanngjarnt að samþ. einnig till. á þskj. 150 með þessari breytingu. Þetta er ekki heldur svo há upphæð, og þó að segja megi, að ríkissjóð muni nú um allt, þá er þetta svo óréttlátt ákvæði, að það verður að afnema það.