17.05.1950
Neðri deild: 108. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1575 í B-deild Alþingistíðinda. (169)

Starfslok deilda

Einar Olgeirsson:

Ég leyfi mér fyrir hönd allra þingdeildarmanna að þakka hæstv. forseta réttláta og röggsamlega fundarstjórn og alla samvinnu, óska honum góðs sumars og velfarnaðar í hvívetna, og vona ég, að við hittum hann öll heil á næsta þingi. — [Tóku deildarmenn undir með því að rísa úr sætum.]