31.01.1950
Neðri deild: 36. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1164 í B-deild Alþingistíðinda. (1733)

101. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Þegar sýnilegt var, að fjárlög yrðu ekki afgreidd fyrir áramót, var fengin heimild til að halda áfram nauðsynlegum greiðslum ríkissjóðs til 1. febr. Þar sem fjárlög hafa enn ekki verið afgreidd, er nauðsynlegt að fá framlengda þessa heimild, og er farið fram á í frv. þessu, að hún gildi til 1. apríl.

Óþarft er að vekja sérstaka athygli á því, hverja nauðsyn ber hér til. Þetta er nú komið á síðasta dag, og vil ég leyfa mér að mælast til þess við hæstv. forseta, að reynt verði að afgreiða málið í dag. Fjhn. hefur athugað málið, og það er hún, sem flytur það.