13.01.1950
Neðri deild: 29. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1171 í B-deild Alþingistíðinda. (1798)
91. mál, ættaróðal og erfðaábúð
Frsm. (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa langa framsögu fyrir þessu máli, vegna þess að þessu litla frv. fylgir allýtarleg grg. Þó skal ég aðeins minnast á nokkur atriði.
Frv. þetta er samið af nýbýlastjórn, sem sendi það ríkisstj., sem svo óskaði eftir, að hv. landbn. þessarar hv. d. flytti þetta frv.
Það, að nýbýlastjórn hefur lagt til, að gerð verði breyt. á núgildandi l. um þetta, stafar af því, að þegar þessi l. voru sett, sem mun upphaflega hafa verið 1936, þá var, þegar um veðsetningu nýbýla var að ræða, miðað við það ástand, sem þá var. Þá var það hámark, sem sett var í l. fyrir veðsetningu, sett eftir því verðlagi, sem þá var gildandi um byggingarkostnað og ræktunarkostnað, og þá var það talið fullnægjandi, sem í l. var ákveðið. Þegar l. voru endurskoðuð 1943, þá var að vísu komin nokkur röskun á þetta. En vegna þess, að þá var allt óvíst um verðlag og allt þess konar eftir stríðið, sem þá stóð yfir, þótti ekki ástæða þá til þess að breyta þessum ákvæðum, sem voru í l. frá upphafi. Þau voru því þá látin standa óbreytt. En afleiðingin af hinni stórkostlegu röskun, sem orðið hefur á byggingarkostnaði síðan l. voru fyrst sett, hefur orðið sú, að með þeirri breyting á byggingarkostnaðinum má kalla útilokað, að þeir, sem sitja óðalsjarðir eða hafa jarðir á erfðaleigu, geti fengið lán, sem þeim séu að gagni til bygginga eða ræktunar. Ég lít því svo á, að ef þessu fyrirkomulagi í þessu efni væri haldið, mundi það skapa algera kyrrstöðu hjá þessum hlut.a bændastéttarinnar viðkomandi byggingum og ræktun. Þetta gildir jafnt um óðalsbændur og þá, sem hafa erfðaleiguábúð. — Það hefur þá líka bætzt við þetta, að í upphafi, fyrst eftir að ættaróðals- og erfðaábúðarlöggjöfin var sett, munu þær jarðir sérstaklega hafa verið gerðar að óðalsjörðum, sem búið var að gera allmikið á, hýsa og koma þar á allmikilli ræktun. Það var því ekki mikil þörf á breyt. á l. þeirra vegna. En með l. frá 1946, um sölu þjóðjarða og kirkjujarða, var sett það skilyrði, að því aðeins væru þessar jarðir seldar einstaklingum, að þær væru gerðar að ættaróðulum þessara manna. En allur þorri þessara jarða voru lítt hýstar og ræktun á þeim skammt á veg komin. Það hefur því komið harðast niður á þessum hópi manna, sem keypt hafa jarðir, sem áður voru í eigu ríkisins, og þurfa nú af nauðsyn að byggja á þeim. Þeir eru því mjög illa settir að þessu leyti og því óumflýjanlegt að breyta þessum ákvæðum af þeim sökum.
Þá þótti nýbýlastjórn sjálfsagt, að þetta tæki ekki aðeins til óðalsjarða, heldur líka til þeirra jarða, sem eru í erfðaábúð, vegna þess að í þessum kafla l. gilda alveg sömu ákvæði þar, og væri því sjálfsagt, að þetta næði til beggja flokka þessara jarða.
Um breyt. á 2. gr. er það að segja, að þar er numið burt hámarkið fyrir lánveitingunni. En í þess stað er heimilað að taka lán til umbóta á jörðunum, og það einskorðað við byggingarsjóð Búnaðarbanka Íslands og Ræktunarsjóð Íslands. Þar með telja nýbýlastjórn og landbn., að það sé fengið nauðsynlegt aðhald í fyrsta lagi um, að hvorki verði lánuð óeðlilega há lán, vegna ákvæða, sem eru í lögum þessara lánsstofnana, og í öðru lagi sé jafnframt tryggt, að þessum lánum sé beinlínis varið til umbóta á viðkomandi jörðum, sem geri þær verðmætari og hæfari til búrekstrar heldur en áður. N. lítur svo á, að með þessu móti sé þetta tryggt eins vel og unnt er og ekki sé ástæða til að óttast sérstaklega, að þetta verði misskilið. Aftur á móti vill n. ekki leyfa, að annars staðar séu tekin lán út á þessar jarðir, því að þá er það aðhald úr sögunni, sem er nauðsynlegt.
Ég tel svo ekki ástæðu að ræða þetta frekar. Ég vænti þess, að d. taki þessu máli vel, og vona, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr.