17.01.1950
Neðri deild: 31. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1173 í B-deild Alþingistíðinda. (1803)
91. mál, ættaróðal og erfðaábúð
Frsm. (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Nefndin hefur leyft sér að flytja við frv. þetta tvær smábreytingar.
Fyrri liðurinn er efnisbreyting. Í lögunum er svo ákveðið, að ættarjarðir þurfi að hafa verið í eigu eða ábúð sömu ættar í 100 ár. N. lítur svo á, að þar sé um óþarflega langan tíma að ræða, þar sem gert er ráð fyrir setu fjögurra ættlið.a á jörðinni, og telur nægilegt að miða við þrjá ættliði eða 75 ár. — Það má geta þess, að þessi ákvæði eru sett til þess og verka þannig, að þau tryggja ættmönnum jörðina og eiga þannig þátt í að hindra, að hún lendi í braski, og þau tengja bændur fastar við þessar jarðir, en annars væri. Það er þannig áreiðanlega ávinningur, að fleiri en færri jarðir komi undir þessi ákvæði, og leggur því nefndin til, að tímatakmarkið sé lækkað.
Annar liðurinn er leiðrétting á því, sem láðst hefur hjá þeim, sem undirbjuggu frv., að taka fram, að lögin öðlist þegar gildi.
Ég vil svo leyfa mér að æskja þess, að þetta nái samþykki og málinu verði vísað áfram.