25.02.1950
Efri deild: 63. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1193 í B-deild Alþingistíðinda. (1866)
119. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Lög þau, sem hér er verið að breyta, eru nr. 114/1949. Í þeim l. segir í 1. gr.: „Til 1. febr. 1950 er ríkisstj. heimilt að greiða úr ríkissjóði til bráðabirgða, í samræmi við ákvæði fjárlaga fyrir árið 1949, öll venjuleg rekstrarútgjöld ríkisins og önnur gjöld, er talizt geta til venjulegra fastra greiðslna þess, þótt ákveðin séu og heimiluð til eins árs í senn.“ Samkvæmt 14. gr. fjárl. fyrir árið 1949, II. b., er veittur námsstyrkur samkvæmt ákvörðun menntamálaráðs, kr. 350.000. Nú hefur menntamálaráð ritað fjmrh. bréf og fjmrh. sent það til fjvn. og spurt, hvort n. vilji mæla með því, að þessar greiðslur fari fram, þar sem fjárl. hafa ekki verið afgreidd. Ég lít svo á, að rétt sé, að þessar greiðslur fari fram, en vildi fá að heyra álit hæstv. fjmrh. á því, hvort orðin: „önnur gjöld, er talizt geta til venjulegra fastra greiðslna“ — heimili ráðh. að greiða a.m.k. fyrsta ársfjórðung 1/4 af þeim námsstyrk, eða allt að þeirri upphæð, sem veitt var 1949. Ég minnist á þetta hér vegna þess, að það er aðkallandi, að þeir, sem fengu þennan styrk og búast við að fá hann, geti fengið hann mánaðarlega og sú greiðsla sé ekki tafin. Ég vildi heyra frá hæstv. ráðh., hvort hann telur ekki fært að greiða þetta eftir ákvæðum l. eða hvort hann telur nauðsynlegt að koma með brtt. til að tryggja, að þetta sé greitt, því að það er ótækt, að námsfólk í útlöndum, sem byggir sína afkomu á þessum styrk, þurfi að bíða eftir því t.d. til 1. apríl eða 1. maí, þegar fjárl. verða afgreidd, og geti þar af leiðandi ekki fengið sinn styrk.