30.03.1950
Neðri deild: 77. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1206 í B-deild Alþingistíðinda. (1898)

137. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Mig langar til að segja nokkur orð í framhaldi af því, sem ég sagði í umr. um gengislækkunarfrv. Af hálfu Alþfl. var það frv. gagnrýnt og einnig rökstuðningur sá, sem því fylgdi. Það var á það bent, að þegar gengislækkun væri ákveðin, yrði að taka tillit til þrenns: Í fyrsta lagi, hvort kleift yrði að koma á jafnvægi í utanríkisverzluninni, í öðru lagi, hvort útflutningsatvinnuvegirnir yrðu arðbærir, og í þriðja lagi, hvernig áhrif gengislækkunar yrðu á afkomu ríkissjóðs. Ég tel, að af hálfu Alþfl. hafi verið færð rök fyrir því, að gengislækkunin mundi ekki leiða til jafnvægis í utanríkisverzluninni, svo að hægt væri að gera verzlunina frjálsa. Við drógum það líka í efa, að gengislækkunin mundi tryggja arðbæran rekstur útflutningsatvinnuveganna, og það var sérstaklega á það bent, að vanrækt hefði verið að athuga, hver áhrif gengislækkunin mundi hafa á afkomu ríkissjóðs. Um það ræddi ég talsvert og hélt því fram, að nauðsynlegt hefði verið að gera grein fyrir því, hvort reiknað væri með því, að takast mætti að tryggja hallalausan rekstur ríkisbúsins framvegis. Ýmis atriði í grg. bentu til þess, að ráð væri gert fyrir því, að gengislækkunin ein mundi duga. Ég vakti athygli á því, að þessi staðhæfing væri mjög hæpin, eins og hin staðhæfingin, að jöfnuður mundi nást í utanríkisverzluninni og skilyrði skapast fyrir frjálsa verzlun. Það er nú smám saman að koma í ljós, að varnaðarorð Alþfl. hafa haft við full rök að styðjast. Það hefur meira að segja komið í ljós, að hæpið er, að gengislækkunin tryggi rekstur bátaútvegsins og hraðfrystihúsanna, og með flutningi þessa frv. er það sannað, að afkoma ríkissjóðs hefur ekki verið tryggð. Þess vegna verður nú að innheimta skatta, sem hagfræðingarnir töldu, að hægt væri að afnema. Það stendur að vísu ekki í frv., að afnema skuli söluskattinn, en þrátt fyrir það er sýnilega gert ráð fyrir því, að hann falli niður. Í þeim kafla grg., sem fjallar um styrkjaleiðina, eru útreikningar um þá skatta, sem framlengja þurfi, verði sú leið farin, en í kaflanum um gengislækkunina eru engir slíkir útreikningar. Með þessu er það óbeint sagt, að söluskatturinn verði ekki lengur í gildi, en til 1. apríl. Annað, sem bendir til hins sama, eru útreikningarnir um verðhækkunina. sem gengislækkunin muni hafa í för með sér. Í grg. er talið, að þessi verðhækkun muni nema 11–13%. Síðari athuganir sýna, að hækkunin á gömlu vísitölunni hefði orðið um 16%, ef söluskatturinn er felldur niður, en 19%, ef hann er ekki felldur niður. Það munar því 3%, hvort skattinum er haldið eða ekki. Sú 11–13% hækkun, sem reiknað er með í grg., er miðuð við nýju vísitöluna, og þar er ekki gert ráð fyrir söluskattinum. Ef söluskattinum er haldið, verður því hækkun nýju vísitölunnar tvímælalaust 14–15%. Það er fyllsta ástæða til að vekja athygli á þessu. Höfundar grg. taka það skýrt fram, að ástæðan til þess, að þeir mæli með kaupuppbótum, sé sú, að þeir telji, að ekki þurfi nema um 10% kaupuppbætur. Þeir segja, að ef þær verði meira en 10%, þá sé allt kerfið hrunið. Sjávarútvegurinn þolir, að tekin séu 10% af þeim auknu tekjum, sem hann fær, en ekki meira. Hvað skeður nú, ef þetta frv., sem hér liggur fyrir, verður samþ.? Mér virðist, að stefnt sé að því, að verðhækkunin verði 14–15%. Kaupgjaldið hækkar þá einnig um 14–15%, en samkvæmt grg. þolir kerfið þetta ekki, það hrynur. Þetta er dómur höfundanna sjálfra, það eru þeirra eigin rök, sem ég hef fært hér fram.

Ég vil einnig benda á, hver áhrif það hefur á ákvörðun fiskverðs og kjör hlutarsjómanna, ef hækkunin verður 3% meiri en gert var ráð fyrir. Þá raskast hlutfallið milli hlutarsjómanna og annarra launþega, og þarf því að hækka fiskverðið til þess að leiðrétta það. Sú hækkun skapar þörf á enn meiri gengislækkun, og síðan koll af kolli. Hér er verið að vinna gegn tilgangi gengislækkunarfrv. Hér er verið að stofna til aukinnar dýrtíðar og kauphækkana í svo stórum stíl, að sjálfir höfundar gengislækkunarfrv. mundu telja, að með þessu væri öllu kerfinu stefnt í beinan voða.

Ég vil að lokum ítreka það, sem hv. 8. landsk. sagði, að það hlýtur að vekja vonbrigði, að það fyrsta, sem heyrist frá hæstv. ríkisstj., skuli vera till. um hækkun á sköttum, en ekki till. um samfærslu hjá ríkinu. Bæði hæstv. fjmrh. og hæstv. viðskmrh. hafa þó haft orð á því, að ráðstafanir í þeim efnum væru mjög nauðsynlegar. Þá þykir mér rétt að vekja athygli á því, þar sem það hefur ekki komið fram áður, að framlenging söluskattslaganna óbreyttra felur í sér hækkun söluskattsins vegna gengislækkunarinnar. Þess vegna eru áhrif hans svo ótrúlega mikil. Það er um verulega hækkun í krónum að ræða, af sömu ástæðum og lækkun verðtollsins í gengislækkunarfrv. fól í sér hækkun.