30.03.1950
Neðri deild: 78. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1222 í B-deild Alþingistíðinda. (1916)
137. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Forseti (SB):
Hv. þm. hafa heyrt hina skriflegu brtt., sem hv. þm. V-Ísf. (ÁÁ) hefur borið fram og lýst. Brtt. er of seint fram borin, auk þess sem hún er skrifleg, og þarf fyrir henni tvöföld afbrigði, til þess að hún komist að, og vil ég leita þeirra afbrigða hér með.