30.03.1950
Neðri deild: 78. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (1924)

137. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það var út af því, sem hv. 2. þm. Reykv. (EOI) sagði. Það er rétt, að það kann að koma fram nokkurt ósamræmi í sambandi við leyfisgjaldið, og þarf það athugunar við. Ég treysti mér ekki til að gefa ákveðnar upplýsingar um það nú, en það verður tekið til sérstakrar athugunar í sambandi við framkvæmdina. Það er nokkur tími, sem menn hafa kannske orðið að borga bæði háa leyfisgjaldið og það nýja.

Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að taka yrði alvarlega til athugunar að skera niður af skrifstofubákni ríkisins. Það er rétt, að taka þarf þetta til alvarlegrar athugunar, og það ætlar ríkisstj. sér líka að gera, en ég er frábitinn því að gefa nokkrar tyllivonir í þessu sambandi og tel, að hyggilegast sé að segja ekki meira í þeim efnum en hægt er að standa við. Það er þess vegna ekki hægt að gefa neina yfirlýsingu á þessu stigi, en þetta verður tekið til ýtarlegrar athugunar. En þótt svo færi, að af þessu yrði árangur — og þess er að vænta —, fólki væri fækkað og færðar saman stofnanir, þá kæmu afleiðingar þess ekki fram á þessu fjárhagsári, því að eins og vitað er, er fólkið ráðið með löngum uppsagnarfresti og aðdragandinn að því nokkur, þannig að það hefur þess vegna ekki áhrif á afkomu þessa árs. Þetta vildi ég taka fram og jafnframt, að menn mega ekki gera sér neinar tyllivonir, en að sjálfsögðu ber að taka þetta til mjög alvarlegrar athugunar.