30.03.1950
Efri deild: 84. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1234 í B-deild Alþingistíðinda. (1934)

137. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Haraldur Guðmundsson:

Virðulegi forseti. Ég efa ekki, að það er rétt, sem hæstv. landbrh. sagði, að það sé ekki með glöðu geði, að ríkisstj. leggi þetta frv. fram. Ég vil bæta því við, að það sé ekki með glöðu geði, að hann hafi gerzt formælandi frv.

Það leikur varla á tveim tungum, að áður en gengislækkunin var ákveðin, var málið lagt þannig fyrir þing og þjóð, að það væri ekki nema um tvennt að ræða: annaðhvort að halda áfram uppbótargreiðslunni og taka til þess skatta og tolla eða hins vegar að lækka gengið. Þjóðin átti sem sagt að velja á milli þeirra tolla, sem þegar höfðu verið lagðir á, eða taka gengislækkun og losna þá heldur við tollagreiðslurnar. Nú, hálfum mánuði eftir að gengislækkunin er orðin að l., er hæstv. ríkisstj. komin á aðra skoðun: að það þurfi bæði gengislækkun og tollabyrðar til að halda þjóðarskútunni á floti. Því skil ég mætavel, að hæstv. landbrh. sé ekki létt um tungutak, þegar hann ber þetta frv. fram. Þó get ég ekki neitað því, þótt ég þykist skilja hann, að mér finnst, að hann hefði átt að sýna viðleitni til að gera málinu gleggri skil, en hann gerði í sinni stuttu ræðu hér áðan. Hann taldi, að það vantaði 30–45 millj. kr. til jöfnunar á fjárl. Þessi útreikningur er vægast sagt ekki nákvæmur, þar sem hann hleypur á 15 milljónum. Þetta bendir til þess, að sú athugun, sem fram hefur farið í sambandi við áætlun fjárl., sé lausleg og harla ónákvæm. Má þetta heita furðulegt, en hitt gegnir þó enn þá meiri furðu, að hæstv. ráðh. skyldi ekki nefna það einu orði, að gengislækkunin út af fyrir sig hækkar tekjur ríkissjóðs stórlega, því að allir þeir tollar, sem miðast við fob. verð vörunnar, hækka stórlega. Mér hefur talizt svo til við athugun á fjárlagafrv., þar sem verðtollurinn er áætlaður 58 millj. kr., að sú upphæð muni hækka um 40 millj., og þetta er miðað við 12 mánuði, og er hér því um mikla hækkun í krónum að ræða. Ég harma það, að svona mál skuli ekki hafa fengið nákvæmari afgreiðslu, en nú fer hér fram á því, en vissulega væri þess brýn þörf. Ég skal ekki fara mörgum orðum um þetta mál, en ég get ekki látið hjá líða að benda á, að það var trú alþm., að söluskatturinn yrði felldur niður, ef gengislækkunarfrv. næði samþykki þingsins. Að vísu er það rétt, að ýmislegt hefur í ljós komið síðan gengislækkunin var samþ., sem valdið hefur því, að hæstv. ríkisstj. lítur nú öðrum augum á þetta mál en fyrir gengislækkunina. Ég man ekki betur, en að því hafi verið haldið fram af stjórnarflokkunum, að sú ráðstöfun mundi leiða af sér aukna framleiðslu og aukna útflutningsframleiðslu og skapaði þannig auknar þjóðartekjur, bátaflotinn hagnýttist betur og gömlu togararnir, sem legið höfðu við festar, færu á veiðar. Nú hefur farið svo, að lítil aukning hefur átt sér stað, en heldur hallazt á hina hliðina, því að nú er búið að selja a.m.k. tvo af gömlu togurunum. Það fékkst hærra verð fyrir þá í íslenzkum krónum en ella, en ekki eykur sú ráðstöfun þjóðartekjur Íslendinga eða eykur útflutninginn. Ég bendi á þetta dæmi til þess að sýna fram á, að viðhorf hæstv. ríkisstj. er breytt frá því sem það var til þessa máls, eins og kom fram í umr. í hv. Nd. Nú ætti hún að játa það, að hún sjái betur, en þegar gengislækkunarfrv. kom í þingið í byrjun marzmánaðar.

Ég skal ekki fara fleiri orðum um þetta mál nú, en ég vil leyfa mér að beina því til hæstv. landbrh., hvort honum finnist ekki tilhlýðilegt, sökum þess, hvernig þetta mál er lagt fyrir, að háfa þinglegan hátt á afgreiðslu þess og vísa málinu til n. að umr. lokinni og fá nánari upplýsingar um það hjá hæstv. fjmrh., hve miklar tekjur ríkissjóður muni fá vegna gengislækkunarinnar. Enn fremur langaði mig til þess að vita, hvort form. fjvn. hefði nokkuð litið á áætlanir fjmrh. varðandi áætlun þessara tekna. Það væri ekki ófróðlegt að fá einhverja vitneskju um þetta.