30.03.1950
Efri deild: 84. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1235 í B-deild Alþingistíðinda. (1936)

137. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Gísli Jónsson:

Forseti. Ég ætla ekki að ræða þetta mál á þessu stigi, en það kom hér fram áðan fyrirspurn til formanns fjvn., hvort hann hefði athugað áætlun hæstv. fjmrh. um tekjur ríkissjóðs á yfirstandandi ári og hvernig n. liti á þær áætlanir. Út af þessu vil ég upplýsa hv. þm. um, að enn sem komið er hef ég ekki séð þessa áætlun. En eins og kunnugt er, hefur hæstv. fjmrh. verið sjúkur, og hef ég aðeins átt um þetta við hann eitt samtal, og sagðist hann þá hafa þessar áætlanir í undirbúningi, og hafa þar því ekki legið fyrir fjvn. og m.a. vegna þess hefur töf orðið á störfum n., því að þessar áætlanir eru grundvöllurinn, sem hún byggir sitt starf á. En hins vegar get ég upplýst, að eins og sjá má af fjárlfrv., þá er gert ráð fyrir um 30 millj. kr. tekjuafgangi og um fjögurra milljóna tekjujöfnuði. En síðan hafa bætzt við og verið sendar til n. ýmsar viðbótarkröfur, m.a. um sjö millj. kr. viðbótarkrafa frá hæstv. ríkisstjórn eða einstökum ráðh. og þess utan ein og hálf millj. kr. á heimildargreiðslur, og þess utan hafa komið kröfur frá stofnunum ríkisins um að taka inn um 1.100 þús. kr. og auk þess frá einstaklingum um sjö og hálf millj. kr. Það lætur því nærri, að þetta muni nema samtals um 18 millj. kr. Þrátt fyrir þetta er það kunnugt, að ýmislegt er það, sem enn þarf að bæta inn í fjárlfrv. samkv. l. þar að lútandi. Það er því alveg rétt, sem hæstv. landbrh. sagði hér áðan, að ýmsir útgjaldaliðir, sem ekki eru að neinu leyti í sambandi við gengislækkunina, þurfa að fara inn á fjárlögin, en eru ekki komnir þangað enn. Þetta þótti mér rétt að kæmi fram. En úr því að ég er staðinn upp á annað borð, vil ég í fullri vinsemd benda hv. 4. þm. Reykv. (HG) á, að hann og hans flokkur bera mikla ábyrgð á, að nú er farið fram á framlengingu III. kafla l., því að hækkun launa opinberra starfsmanna, sem þeir áttu mestan þátt í að samþ., er ekki hvað sízt orsök þess, að nú þarf að framlengja þennan kafla. Við stóðum þá í hörðum deilum hér á Alþingi út af því máli, og hefði hv. þm. átt að vera það ljóst, að sú gerð hlaut að leiða til mikilla vandræða. Ég verð að segja það, að ef hæstv. ríkisstj. og þm. yfirleitt ætla að slá verndarhring um áhrif gengisbreytingarinnar og fjármálalífið, þá er það fyrsta sporið að snúa við á þeirri braut, sem mörkuð var með launauppbótinni til opinberra starfsmanna, því að það hlýtur að verða krafa þjóðarinnar, að ríkið spari í embættisrekstrinum, og alveg er meiningarlaust að vera að hækka laun þeirra, sem sitja í öruggum embættum. Það þarf ekki heldur að spyrja að andstöðu almennings við nauðsynlegar álögur, þegar verið er samtímis að gefa lífstíðartryggingu þeim mönnum, sem bezt eru launaðir og sitja í þeim embættum, sem mest er sótzt eftir. — Þetta þótti mér rétt að láta koma fram.

Þá minntist hv. þm. einnig á það, að tveir af gömlu togurunum hefðu verið seldir úr landi. Þetta er alveg rétt, en það er gert í þeirri vissu, að það fé, sem fæst fyrir þá, verði notað til kaupa á nýrri og betri togurum en þessum, til þess að skapa þeim, sem við þá vinna, betri og öruggari lífsafkomu. Ég tel það og ekkert til þess að furða sig á, þótt allir bátar séu ekki komnir á sjó eftir 14 daga. Ég veit ekki, hvort öllum hv. þm. er ljóst, að undanfarin þrjú ár hafa útgerðarmenn þurft að eyða öllum sínum sjóðum, lánstrausti og styrkjum, svo að þeir ge,ta ekki hafið starfsemi sína nema með bættum möguleikum og nýjum mönnum, og finnst mér ekkert óeðlilegt, þótt þeir nýju menn láti standa á sér í 14 daga. En þessi vandræði hafa svo stafað af því, að flokkur þessa hv. þm. hefur ekki fengizt til að samþ. breytingu á genginu í réttara horf undanfarin fjögur ár. Hann ber þess vegna ábyrgðina á því, hvernig komið er. Eftir 1946 var ljóst orðið, að ekki var hægt að halda áfram á þeirri braut að borga niður aðalatvinnuveg þjóðarinnar. Átti ég þá tal. um þetta við hæstv. fyrrv. viðskmrh., og lýsti hann því þá yfir, að hann mundi með öllum ráðum reyna að viðhalda niðurgreiðsluleiðinni. Var það því ekki vegna þess, að þessum háttv. flokki væri ekki bent á villu síns vegar, heldur vegna. þess, að hann tók þann kostinn að berja höfðinu við steininn og hunza allar staðreyndir.

Úr því að ég er nú staðinn hér upp, vildi ég segja nokkur orð um frv. sjálft. Ég get tekið undir það með hv. 4. þm. Reykv., að slæmt sé að þurfa að framlengja þessi tekjuöflunarákvæði. Þó er það aðallega eitt ákvæði, sem mér er þyrnir í augum, og það er álagið á gjaldeyrinn til ferðalaga. Ekki af því, að mér sé sárt um, að þeir greiði aukaskatt í ríkissjóð, sem hafa efni á því að ferðast, heldur af því, að það gefur beinlínis til kynna, að gengið sé ekki fellt nægilega mikið, og í öðru lagi vegna þess, að þetta gefur þeim mönnum, ef einhverjir eru, sem eiga fé erlendis, aðstöðu til þess að selja það á svörtum markaði með miklum hagnaði, því að þeir geta stórgrætt á því, þótt þeir selji féð smávegis undir gangverði. En ég vil taka skýrt fram, að ég segi ekki, að það séu einhverjir, sem eiga fé erlendis, heldur aðeins ef svo væri. þá væru þarna opnaðir miklir möguleikar fyrir þá að græða stórfé. Þetta skapar einnig vissa freistingu fyrir menn að draga undan gjaldeyri og selja síðan. Þetta eru þær ástæður, sem gera það að verkum, að mér þykir mjög leitt að þurfa að samþ. þetta ákvæði, en alls ekki það, að ég vilji á nokkurn hátt reyna að ívilna þeim eða vorkenna, sem til útlanda vilja ferðast. Það hefði kannske mátt finna annað form til þess að skattleggja þá, sem til útlanda vilja ferðast, t.d. með því að skattleggja meira en nú fluggjöldin eða eitthvað þess háttar. En í sambandi við þetta vil ég minna hv. 4. þm. Reykv. á, hver var upphafsmaður að þessari skattlagningu á ferðagjaldeyrinn. Það var einmitt fyrrv. hæstv. viðskmrh., núv. hv. þm. Hafnf. (EmJ), en í hans stjórnartíð var ekki lagt 25% á, heldur 75% og viðurkenndi hann þar með, að gengið var ekki réttilega skráð. Áttum við hv. þm. Hafnf. harðar deilur um þetta hér í d. á sínum tíma.

Um b-liðinn sé ég ekki ástæðu til að segja mikið, því að ef við erum hér að heyja baráttu upp á líf og dauða til að bjarga fjármálunum, dettur engum manni í hug, að hæstv. ríkisstj. leyfi nokkurn innflutning fólksbila að óþörfu. — Um söluskattinn er aftur nokkuð öðru máli að gegna, því að það er vitanlegt, að gert var ráð fyrir, að hann héldist, þegar fjárlfrv. var samið, og einnig var það samið með það fyrir augum, að gengið gæti ekki haldizt óbreytt allt árið. Þar að auki er hv. þm. kunnugt, að lausaskuldir ríkissjóðs söfnuðust upp í þjóðbankanum og mjög erfitt var orðið að halda uppi nauðsynlegum framkvæmdum í landinu. Auk þess er fjöldi verkefna, sem tæplega þola nokkra bíð eða að framlög til þeirra séu skorin niður. Nýlega var t.d. í þessari hv. d. samþ. um einnar millj. kr. framlag til frystihúsa, og þannig er það, að þarfirnar eru miklar á ýmsum sviðum. En hins vegar skal ég viðurkenna, að til þess að fá þjóðina til að sætta sig við þær byrðar, sem óhjákvæmilega hefði þurft að leggja á hana, hvaða leið sem farin hefði verið til bjargar fjárhagsvandræðunum, þá sættir hún sig ekki við álögurnar, nema hæstv. ríkisstj. byrji á að skera niður öll óþarfa embætti í landinu. Þetta verður að vera krafa allra hv. þm. til ríkisstj., því að þá fyrst sætta menn sig við þær byrðar, sem nauðsynlegt er að leggja á til bjargar fjárhag þjóðarinnar.