30.03.1950
Efri deild: 84. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1237 í B-deild Alþingistíðinda. (1937)

137. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Virðulegi forseti. Ég vil fyrst taka það fram, að ég get fallizt á þá afgreiðslu málsins, að því verði nú að 1. umr. lokinni frestað til morguns, því að ég veit af reynslu, að það er aldrei viðhaft mjög mikið málþóf í þessari hv. d., og þess vegna veit ég, að hægt verður að ljúka afgreiðslu málsins á tilsettum tíma, þótt þessi háttur verði á hafður.

Svo vil ég segja örfá orð viðvíkjandi frv. sjálfu og því, sem fram hefur komið í sambandi við það. En þar sem bæði hv. þm. Vestm. og hv. þm. Barð. hafa tekið fram ýmis atriði, sem ég vildi sagt hafa, get ég stytt mál mitt, enda umr. um það á morgun, og mun þá hæstv. fjmrh. verða viðstaddur umr. og getur hann að sjálfsögðu gefið um málið fyllri upplýsingar, en ég get gert. — Það er nú oftast svo, að þegar lagðir eru á skattar eða tollar, þá finnst mönnum, að það sé allt gert fyrir viðkomandi ríkisstj., en þó er það augljóst, að þegar slíkt er gert, þá verða alltaf einhverjir til þess að sjá fyrir útgjöldum sem því svarar. Og víst er það svo, að við þm. þurfum að biðja um margvísleg útgjöld, sem nauðsynleg eru og sum þannig, að ekki er hægt að sjá þau fyrir, þegar fjárlög eru samin. Þess vegna er það skylda okkar að sjá fyrir tekjum, sem þessum nauðsynlegu útgjöldum svarar, þvo að annars er það jafnvíst eins og tvísvar sinnum tveir eru fjórir, svo að einföld líking sé tekin, að allar okkar ráðstafanir til úrbóta hljóta að mistakast, því að það er alveg auðséð, ef farið er að ausa út peningum umfram tekjur, að þá erum við komnir í sama farið aftur og við vorum að reyna að losna úr. En að þessu mun ég koma örlítið síðar.

Þá vil ég segja nokkur orð um það atriði, sem mest hefur hér verið rætt. Það kom bæði fram hjá hv. 1. landsk. og einnig hjá hv. 4. þm. Reykv., að þeir héldu því fram, að gert hefði verið ráð fyrir því, að söluskatturinn mundi verða afnuminn er gengisbreytingin væri komin á. Hv. þm. Vestm. hefur nú sýnt fram á með glöggum rökum, að þetta er ekki rétt, og ætla ég ekki að fara að endurtaka það, sem hann sagði þessu viðvíkjandi. En við munum vel, að þegar gert var ráð fyrir að standa undir fiskábyrgðinni með söluskattinum, þá var hann í þeim áætlunum fimmfaldaður og upplýst af hæstv. ríkisstjórn, að það mundi þurfa, aðeins til þess að halda bátaútveginum gangandi, um 80 millj. kr. Þó er þar ekki gert ráð fyrir gömlu togurunum. Það þarf því ekki að fara í neinar grafgötur með það, að söluskatturinn gat ekki haldið bátaútveginum gangandi, það liggur alveg ljóst fyrir. Ég get því ekki séð, að það sé neitt að fara aftan að Alþingi, þótt söluskatturinn sé framlengdur, heldur þvert á móti. Það má auðvitað deila um. hvort allra þessara tekna sé þörf. Um það get ég að vísu ekki gefið neinar tæmandi upplýsingar, en þó hygg ég, að það sé svo ljóst, að ekki verði það vefengt. Það var upplýst af hv. þm. Barð., að gert væri ráð fyrir um 30 millj. kr. tekjuafgangi á fjárl., en búið væri að saxa töluvert af honum, því að kröfur upp á sem næst 18 millj. kr. væru komnar til fjvn. og búast mætti við fleirum, en þessar útgjaldakröfur ættu fæstar rót sína að rekja til gengisbreytingarinnar. — Það er alveg rétt hjá hv. þm., að ekki er gott að fara þannig með tölur, að þurfa að segja 10–15 millj., það skal ég fúslega viðurkenna. En ég vil benda hv. 4. þm. Reykv. á, að upplýsingar varðandi þetta atriði eru enn ekki komnar frá þeirri n., sem í þetta var skipuð, þrátt fyrir að gengið hafi verið eftir þeim. Það er því ekki hægt að fá endanlegar niðurstöður á þessu stigi málsins. Ég hef nú ekki við höndina útgjaldaheimildirnar, en þær munu vera komnar upp í um 14 millj. kr., sem ekki eru á fjárlögum. Fjmrn. er nú að tína þetta saman og mér er sagt, að varla liði sá dagur, að ekki komi fram nýjar greiðslur, t.d. í gær kom fram greiðsla upp á um milljón króna. Svo er það vitað, að þegar fiskábyrgðin fellur niður, kemur greiðsla upp á 1.6 millj. kr. Og sannleikurinn er sá, að við höfum reynt að ganga úr skugga um útgjaldaaukninguna, sem er til staðar og mæta þarf, og við það er þetta frv. miðað.

Þá er það, sem sérstaklega hv. 4. þm. Reykv. hélt fram, að bæði verð- og vörumagnstollur mundi hækka við gengislækkunina. Honum reiknaðist til, að þessi hækkun mundi nema um 40 millj. kr. allt árið. Ég vil endurtaka, að hann sagði allt árið, en nú er eins og menn vita töluvert af því liðið, þar sem hækkunin kemur ekki til greina. En því er til að svara, að þessi hlið málsins hefur líka verið rannsökuð verulega, og því miður er útlit fyrir, að útflutningsáætlunin, sem innflutningurinn er miðaður við, fái ekki staðizt. Sá maður, sem gert hefur útflutningsáætlunina, hefur nú nýverið endurskoðað hana, og eftir þá endurskoðun telur hann, að það þurfi að lækka hana um 80–100 millj. kr. og þá um leið innflutningsáætlunina til samræmis. En þetta stafar af ástæðum, sem hv. þm. eru vel kunnar, þ.e.a.s. aflaleysi, markaðsvandræðum og lágu verði fyrir afurðir okkar. — Það má enn fremur á það minnast, þegar talað er um þessar tolltekjur, að við höfum séð, að núna síðustu dagana hafa verið töluvert sæmilegar aflasölur hjá togurunum, og maður skyldi því ætla, að nokkur gjaldeyrir kæmi inn. En þá kemur í ljós, að um skuldir er að ræða, vegna taps á togurunum í vetur, og að verulegur hluti gjaldeyrisins fer í þær. Í vetur borguðu togararnir ekki útgerðarkostnað, svo að senda varð út verulegar fjárhæðir til þess að borga sjómönnunum kaup það, sem þeir áttu að fá í erlendum gjaldeyri. Sá gjaldeyrir, sem við mættum halda, að við fengjum nú til þess að geta aukið tolltekjur okkar, fer í að greiða skuldir, sem safnazt hafa, þegar togararnir voru að því komnir að stöðvast. Það er þess vegna, þrátt fyrir gengisbreyt., rétt að fara varlega í það að reikna með verulega hækkuðum tolltekjum frá því, sem gert er ráð fyrir í frv., þegar tekið er tillit til alls þessa og með tilliti til þess, að þessar tekjur eru of hátt áætlaðar. Ég vildi óska þess, að það rættist, sem virðist vera aðalatriði þess sem hv. 1. landsk. þm. og hv. 4. þm. Reykv. hafa sagt hér, að það sé raunverulega að einhverju leyti óþarft að leggja á söluskatt. Og það mun ekki standa á ríkisstj. að afnema þessi gjöld strax og það sýnir sig, að hægt er að gera það. Ég vildi, að það ætti eftir að sýna sig, að um verulegan tekjuafgang yrði að ræða, en því miður er útlitið þannig nú, að þótt þessi söluskattur verði lögfestur áfram, þá geri ég mér litlar vonir um tekjuafgang á landsreikningnum á árinu 1950. Sé það svo, að því verði tæplega náð, þá virðist alveg augljóst, hvað sem öðru líður, að það má undir engum kringumstæðum koma fyrir, að um greiðsluhalla verði að ræða á fjárl. Hv. þm. Vestm. minntist á það, hvernig fjárlfrv. hefðu verið afgreidd undanfarin ár, og sagðist hafa orðið að láta undan síga og sumpart hafa verið of bjartsýnn. Það er rétt, að það hefur verið um stöðugan greiðsluhalla að ræða, og við höfum að því leyti hagað okkur öðruvísi, en nokkur þjóð í nágrenni okkar. Það fyrsta, sem Norðurlandaþjóðirnar gerðu til að rétta við fjárhag sinn, var að ná því takmarki að hafa tekjuafgang á fjárl. sínum, og það bjargaði þeim. En ef við komum ekki til með að hafa greiðsluhallalaus fjárl. nú, þá rísum við ekki undir þeim ráðstöfunum, sem nú er verið að gera, og við lendum út í fullkomnum ógöngum með allt okkar fjármálakerfi. Það hefur verið sagt, að ýmislegt líti öðruvísi út en ríkisstj. hafi ef til vill búizt við, að ekki sé enn þá eins bjart fram undan, þrátt fyrir gengisbreyt., eins og gert hafi verið ráð fyrir, þegar henni var komið á. Ég skal viðurkenna það, að ýmislegt er öðruvísi en ég bjóst við um afkomuna, a.m.k. hvað framleiðsluna snertir. Ég hef stungið upp á því í ríkisstj., að byrjað verði á að gefa greinilegar skýrslur um afkomu framleiðslunnar, því að það er eitt grundvallaratriði í okkar þjóðfélagi, sem algerlega hefur verið gengið fram hjá á undanförnum árum. Ætli almenningur viti það yfirleitt, að gengislækkunin er allt of seint gerð og þegar búið er að greiða uppbæturnar samkvæmt þessari gengisbreytingu, þá er hún ekki það mikil, að hún stimuleri og líka vegna þess að verðfall kemur samtímis? Það er rétt, að gengisbreytingin kemur of seint. Ég átti mjög nákvæmt samtal við manninn, sem undirbjó gengisbreyt., og hann dró enga dul á það, að hún væri gerð of seint. Þetta er skiljanlegt, þegar menn vita, að þannig er nú komið, að þrír kaupstaðir, sem gera út nýsköpunartogara, eru allir, þegar gengisbreytingin er gerð, komnir í skuldir og töp af því að gera út einn einasta togara hvert. Skuldirnar eru mikið á aðra millj. kr. á hvert bæjarfélag. Eitt lítið bæjarfélag er komið með tap, sem nemur 11/2 millj. kr., og er ekki útlit fyrir annað en gjaldþrot þar eða það verður að jafna skuldinni á borgarana, en ég sé ekki, að slíkt sé mögulegt. Annað bæjarfélag er með tvo togara, og tapið er næstum því tilsvarandi eins mikið þar. Þriðja bæjarfélagið er þannig sett, að það er búið að vísa togaranum frá sér, og hann er kominn á sparisjóð bæjarfélagsins. Halda menn svo, þegar svona er komið og búið er að draga svona lengi að gera ráðstafanir til lagfæringar, að hægt sé að koma þeim fjörkippi í þetta, að um einhver snögg umskipti verði að ræða? Hv. 4. þm. Reykv. sagði, að það kæmi kannske ekki mikill fjörkippur í atvinnulífið. Ég skal ekkert um það segja, hvort hann verður mikill eða lítill, en ég verð að segja það, að ef ekkert hefði verið gert og engin gengisbreyt. gerð, með hag togaraflotans fyrir augum, sem er blóminn úr íslenzku framleiðslunni, — að menn tali svo ekki um bátaútveginn, en það mun vera einsdæmi, að gert sé „moratorium“ fyrir einn stærsta atvinnuveg nokkurrar þjóðar, svo að ekki megi ganga að honum, — þá væri fróðlegt að sjá framan í landsmenn nú og er menn einnig sjá, að ekki er hægt að halda áfram niðurgreiðslum. Það er ástand, sem við verðum að bera saman við það ástand, sem er í dag, sem ég efast um, að margir vildu sjá. — Því er haldið fram af sumum, að gengisbreyt. muni mistakast. Ég skal ekkert um það fullyrða. Þetta er síðasta tilraun fjárhagslega drukknandi þjóðfélags, eins og rök hafa verið leidd að, og ekki þarf að rökstyðja það fyrir hv. dm. Þetta er tilraun til að bjarga þjóðfélaginu, og mistakist hún, fá menn að sjá framan í það, sem þeir virðast heldur hafa kosið og hefði verið komið nú, ef ekkert hefði verið að gert.

Ég skal svo ekki orðlengja frekar um málið að sinni, en vil að lokum endurtaka það, að ég get vel fallizt á það fyrirkomulag og tel það allt eins heppilegan afgreiðslumáta, að málinu verði nú komið til 2. umr. og síðan verði haldið áfram umr. um það á morgun.