31.03.1950
Efri deild: 85. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1247 í B-deild Alþingistíðinda. (1942)

137. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Frsm. meiri. hl. (Jóhann Jósefsson):

Virðulegi forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hélt fund um málið undir forsæti hv. þm. S–Þ. (KK), sem í veikindaforföllum hv. 1. þm. Eyf. gegnir störfum í n. Málið var rætt við nm. þá, sem sæti eiga í fjhn., og er skemmst frá því að segja, að leiðir skildu um afgreiðslu þess, þar sem meiri hl., eins og segir á þskj. 515, vildi leggja til að samþ. frv. óbreytt, en tveir nm., þeir hv. 1. landsk. þm. (BrB) og hv. 4. þm. Reykv. (HG), töldu sig málinu ósamþykka og kváðust skila sérálitum. Nú hef ég að vísu ekki séð þau sérálit, og aðeins virðist vera hér í þskj., enn sem komið er, brtt. frá hv. 4. landsk. þm. á þskj. 514, eins og þar segir. Með því að meiri hl. n. hefur ákveðið að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt, leiðir það af sjálfu sér, að hann getur ekki mælt með þeirri brtt., sem þarna liggur fyrir.

Við 1. umr. málsins var nokkuð rætt um þörf eða ekki þörf á þeim skattaframlengingum, sem hér er verið að ræða um. Ég tel ekki á þessu stigi málsins, a.m.k. ekki að svo komnu, rétt fyrir mig að fara út í þær umr. eða gera frekari aths. við þær en ég gerði við 1. umr. málsins. Og læt ég við það sitja að flytja hv. þd. þetta mál eins og fyrir liggur á þskj. 515, en þar er mælt með því, að þetta mál nái fram að ganga óbreytt.