31.03.1950
Efri deild: 85. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1254 í B-deild Alþingistíðinda. (1947)

137. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það er vegna brtt. hv. 4. landsk. þm. (SagrA). Ég get eigi mælt með því, að frv. verði breytt í þá átt. Söluskatturinn verður of lítill. En það þarf að endurskoða þann leigutaxta, sem þessir atvinnurekendur þurfa að taka, og við reiknuðum með því, þegar við framlengdum söluskattinn. En sé farið að velta undanþágur, þá er álitamál, hvað eigi að taka með og hvað eigi. Verður því að framlengja söluskattinn. En athuga þarf þessi atriði nánar á næsta ári og gera þá skynsamlegar breytingar á þeim.

Varðandi þá till. að fella niður leyfisgjöldin, þá er um bílagjöldin það að segja, að atvinnubílstjórar hafa þá sorgarsögu að segja, að eigi hafa margir þeirra fengið leyfi, þótt margir bilar hafi verið fluttir inn. En allur sá innflutningur er þannig vaxinn, að eigi er eðlilegt að fella þessi gjöld alveg niður, og því er gerð sú till., að greidd séu 35% af leyfum fyrir bílainnflutning. Áhrif þess verða sú, að verðmæti, sem kostaði 250 kr., kostar 334 kr. eftir gengisbreytinguna. Hlutföllin eru þessi, og er það minni verðhækkun, en á flestum öðrum vörum. Verður því eigi svo mikil breyting á þessu öllu varðandi bílana sem á öðrum vörum. Ef atvinnubílstjórar hafa fengið leyfi til að flytja inn bíla, mun óhætt að fullyrða, að þeir bílar, sem fluttir verða inn á næstunni, verða skv. þeim leyfum, sem þegar eru í umferð, og er eigi óeðlilegt, að nokkur skattur komi niður á þeim.

Um ferðagjaldeyrinn er það sagt, að á honum sé tvöfalt gengi. Þetta er misskilningur. Hér er um skattabyrðar þær að ræða, sem hliðstæðar eru aðflutningsgjöldunum. Getur verið álitamál, hvort eigi að halda þeim eða ekki. En fyrir sakir vandræðanna um að afgreiða hallalaus fjárl. neyddust menn til að halda gjaldeyrisskattinum, og var hann þó færður í 25%. Er búizt við, að hann gefi riflega þá upphæð, sem ríkissjóður þarf að leggja til námsmanna erlendis vegna gengisbreytingarinnar.