28.04.1950
Efri deild: 98. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1332 í B-deild Alþingistíðinda. (2022)
152. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Herra forseti. Ég vildi aðeins segja það, að það var ekki fyrir tómlæti, heldur vegna þess, að ég þurfti að vera viðstaddur atkvgr. í Nd., að ég var ekki viðstaddur hér áðan, er málið var tekið til 1. umr. En eins og hv. þm. hafa gert sér grein fyrir, er hér aðeins um að ræða framlengingu á gildi l. til 20. maí, og tel ég þá alveg öruggt, að fjárlög geti verið afgreidd.