07.12.1949
Efri deild: 8. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1277 í B-deild Alþingistíðinda. (2030)

44. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdómur

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Ég vil benda á það, að í 16. gr. frv. stendur: „Dómþing verðlagsdóms skulu vera opinber, nema dómur ákveði annað.“ Hjá því verður ekki komizt, hvort sem um er að ræða rannsókn lögregluþjóns eða dómara, að oft er ekki hægt að láta almenning fylgjast með rannsókninni. Ekki vegna þess, að það sé hneykslandi eða siðspillandi, heldur vegna þess, að það er nauðsynlegt til þess að hafa hendur í hári hinna seku, að þeir, sem kunna að vera við málið riðnir, fylgist ekki með rannsókninni. Þetta á ekki síður við um verðlagsbrot og svartamarkaðsbrask en annað. Ég hef ekki verið dómari eins lengi og hv. þm. Str., en ég hef lesið svo margar dómsgerðir, að ég veit, að oftast er ekki viðlit; að almenningur geti fengið að fylgjast með rannsókninni. Ef dómari telur það hægt, getur hann leyft það, og ég hef fyrir löngu, áður en ég varð lögfræðingur, verið viðstaddur dómþing hjá hv. þm. Str. Ef það er talið óhætt, er þeim, sem áhuga hafa á því, leyft að fylgjast með rannsókninni. Hv. þm. Str. sagði, að blöðin ættu þess ekki kost að fylgjast með þessu. Þau hafa aðgang að öllum dómum, sem kveðnir eru upp. Nýlega var ég spurður að því af óviðeigandi aðila frá einu af blöðunum, hvort hann mætti sjá dóm og málsskjöl í tilteknu máli. Ég svaraði því, að ég teldi það skýldu mína að veita leyfi til þess. Ég tel skylt að leyfa almenningi og blöðunum að sjá dóma og skjöl, nema sérstakar ástæður hamli. Leyndin nær því bara til rannsóknarinnar, ef dómarinn telur það nauðsynlegt. Í Þýzkalandi, þar sem ég stundaði framhaldsnám, — að því er „Tíminn“ oft hefur sagt til þess að læra nazisma, þó að það væri nú miklu saklausara, sem sé stjórnlagafræði og réttarfar, var greint á milli frumrannsóknar og svo þess, er málið kom fyrir dóm. Ég tel rétt, að hér verði breytt til í þessa átt. Er málið kemur fyrir dóm, á að taka upp alla rannsóknina í áheyrn almennings. Þá er búið að rannsaka málið svo mikið, að fengin er umgerð, og innan þeirrar umgerðar fer lokaréttarhaldið fram. Það verður líkara leiksviði eftir vissum reglum en rannsókn. Hv. þm. Str. getur ekki auglýst, að nú verði rannsókn hafin og almenningur hafi aðgang að henni. Ég veit, að hann var svo kappsamur og ákafur, er hann var sakadómari, að hann sat yfir sakborningum. kvöld og nætur til þess að þjarma að þeim, ef honum fannst ástæða til. (HermJ: Þjarma að er of mikið sagt.) Jæja, það var víst kallað að hrista þá. Hann veit alveg eins vel og ég, að hann hefði náð lakari árangri, ef allt hefði farið fram fyrir opnum tjöldum á því stigi málsins. (HermJ: Ég hef ekki talað um það.) Frv., eins og það nú liggur fyrir, er ófullkomið, en ég heyri, að betra vakir fyrir hv. þm. Str., og ættu þá ekki að verða vandræði úr því að færa það í skaplegan búning.