31.03.1950
Neðri deild: 80. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1288 í B-deild Alþingistíðinda. (2045)
44. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdómur
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég skal ekki orðlengja þetta frekar, en vildi aðeins segja örfá orð út af því, sem hæstv. landbrh. sagði hér áðan. Það var í fyrsta lagi út af valdi neytendasambakanna. Mér virtist hæstv. ráðh. halda því fram, að það gæti verið óeðlilegt gagnvart þeim aðilum, sem vörurnar eiga, ef neytendasamtökin hefðu einhver áhrif um verðlagningu þeirra. Neytendasamtökin kallaði hann það, en þar á meðal eru félög eins og Landssamband íslenzkra útvegsmanna og Stéttarsamband bænda og fleiri slík, sem þar eiga fulltrúa. Átökin þarna hljóta að verða um það, hverjir eigi að ráða. Eins og fjárhagsráð er skipað, en það hefur með verðlagseftirlitið að gera, þar eru fulltrúar seljenda ákaflega sterkir, og þá er óeðlilegt, að fjárhagsráð, sem kemur fram sem fulltrúi innflytjendanna, hafi afgerandi vald hér.
Þá er annað spursmálið. Er hætt við því, að neytendasamtökin misbeiti valdinu, ef þeim er fengið það í hendur? Mér finnst ekki mikil hætta á þessu, og ég sé það á grg. frv., þegar það var 1agt fram, að flm. hafa ekki álitið hættu á þessu. Í grg. stendur, með leyfi hæstv. forseta:
„Ríkisstjórnin skipar verðlagsstjóra, en hann ræður sér trúnaðarmenn og aðra starfsmenn til eftirlits. Fjárhagsráð á að vísu að gera tillögur um skipun verðlagsstjóra. En meðan það eru ekki umboðsmenn neytendanna í landinu, sem ráða skipun verðlagsstjóra og hverjir eru eftirlitsmenn hans, er það undir hælinn lagt, hvort verðlagsstjóri velst þannig og starfslið hans; að hann sé umboðsmaður neytendanna í landinu frekar en hins aðilans, sem hann á að hafa eftirlit með. Í þessu kerfi, sem nú gildir, er því engin eða ekki næg trygging fyrir neytendur í landinu. Það getur lánazt, en það getur líka alveg eins mistekizt. Vegna þess að því er að einhverju leyti treyst eða hefur verið treyst, getur það orðið skálkaskjól og unnið gegn tilgangi sínum.
Það þykir því rétt að veita neytendum mikla íhlutun um verðlagningu og fulla íhlutun um verðlagseftirlit með því að fá þeim í hendur vald til að velja verðlagsstjóra og trúnaðarmenn hans.
Neytendur geta þá engan um það sakað nema sjálfa sig, ef verðlagning og verðlagseftirlit er slælega framkvæmt....“
Þetta er alveg í samræmi við það, sem ég hef sagt í minni ræðu. Ég vildi draga úr valdi fjárhagsráðs á þessu sviði og helzt afnema það með öllu. Ráðherra vildi, þegar hann flutti þetta frv., veita neytendunum meira vald, svo að ég held því, að það sé ljóst, að gagnrýni mín miðar í sömu átt og hugmyndir flm., er frv. var lagt fram, svo að það eru þá einhver önnur sjónarmið, sem síðar hafa komið til greina, ef hann álítur þetta rangt nú. Í 3. gr. frv., eins og það var fyrst lagt fram, er svofellt ákvæði:
„Verðlagsstjóra (verðgæzlustjóri heitir hann eins og frv. er orðið) er skylt að gera ýtarlegar og rökstuddar tillögur til fjárhagsráðs um verðlag í landinu, álagningu og hver verðlagsákvæði skuli þar um sett . .“ Eins og frv. var í upphafi átti verðgæzlustjórinn að hafa tillögurétt um verðlag í landinu, en þetta ákvæði hefur nú verið þurrkað út úr 3. gr. Verðlagsstjóri hefur ekki tillögurétt um verðlag í landinu, svo að þessi „mikla íhlutun“ er alveg gersamlega brott numin, og það eina, sem hann á að gera, er að líta eftir því, að reglum fjárhagsráðs um verðlag sé hlýtt. Viðvíkjandi þeirri hættu vegna misbeitingar samtakanna verð ég að segja, að ég held, að hún sé ekki stór, og vafalaust hefur verið dregið úr henni, hafi hún einhver verið, með breytingum, sem gerðar voru á frv. í Ed. um það, að atvinnurekendur skyldu fá fulltrúa skv. 2. gr. Ég held, að hagsmunir þessara fulltrúa séu svo mismunandi, að óeðlilegt sé, að þeir geti sameinazt um að gera rangari ákvæði, en fjárhagsráð. En þetta mætti bæta og færa aftur í upprunalegt horf. Ég held, að það væri heppilegra að gefa verðgæzlustjóra meira vald en honum er ætlað í frv., eins og það liggur nú fyrir. Ég skal nefna eitt dæmi um þetta. Það er um olíuna, sem ég var áður búinn að minnast á. Það er ekki þægilegt fyrir fjárhagsráð, sem hefur veitt tveimur olíufélögum leyfi til þess að reisa tvær stórar tankstöðvar, að segja: Þið megið ekki hækka olíuverð svo mikið, að þið getið afskrifað þessar stöðvar. — En það er hægt að segja nei, ef neytendasamtökin hafa þarna íhlutunarrétt. Fjárhagsráð heldur áfram að gera vitleysur, þar býður ein vitleysan annarri heim.
Þá minntist hæstv. ráðh. á það, að vafasamt væri að hafa 3 dómara, því að þá væru tveir þeirra ólöglærðir. Hæstv. ráðherra hefur, sé ég, sjálfur lagt það til í upphafi í 12. gr. frv., að dómararnir væru þrír, þannig að hann hefur þá sjálfur gengið út frá því, að það væru tveir ólöglærðir. Ég held því, að ég hafi verið fyllilega á línu hæstv. ráðh., og ef hann hefur hvikað frá þessu ákvæði af ótta við að hafa tvo ólöglærða menn í dóminum, þá vil ég bara benda honum á, að það þarf ekki annað en að ákveða, að annar meðdómandinn skuli vera lögfræðingur, því að ég efast ekki um, að hæstv. ráðh. hafi svo mikla trú á stéttinni, sem hann er í, að hann geti treyst þeim. Ef það er ekki annað en þetta atriði, sem á strandar, þá virðist mér hægt að bæta úr því, og þá held ég, að réttarörygginu sé borgið.
Þá vildi ég aðeins skjóta því inn að síðustu, að við erum sammála um það, að aðalvandamálið er ekki neyzlan og verzlunin, heldur svarti markaðurinn, eins og fram kemur í grg. með frv. En eins og frv. er nú orðið, þá er spurning um það, hvort svarti markaðurinn kemst undir það. Svarti markaðurinn er ólöglegur innflutningur og ólögleg sala á þeim innflutningi. Er þá ekki hætt við því, að sá, sem að slíkri verzlun stendur; segi bara, þegar verðgæzlustjóri hefur uppgötvað hann: Nei, heyrðu bara, góði. Þetta kemur þér ekki við, þetta heyrir ekki undir verðlagið, þetta heyrir ekki undir ákvæði verðlagslaganna. Þetta er brot á tollalögum, þetta er smygl. Þér kemur þetta bara ekkert við. Hugsa þú um þig. Þegar búið er að „konstatera“, að mál út af þessu eigi ekki undir verðlagsdóm, heldur sé þetta brot á innflutningslöggjöfinni; er þá ekki hætt við því, að viðkomandi yfirvöld segi: Skiptu þér ekkert af því, þetta er ekki þér viðkomandi, þetta er smygl, en ekki verðlagsbrot. — Ef t. d. varan kemur frá Keflavíkurflugvelli, þá er það undir dómsmrh. komið, hvort málssókn fer fram eða ekki. Þá fjallar verðlagsdómur ekki um málið, heldur er það einn héraðsdómari. Er ekki líklegt, að svarta markaðinum verði komið undan verðlagsdómi vegna þess, að hann er brot á fleiri lögum en verðlagslögum? Ég held, að frv. hafi verið götótt, þegar það var lagt fram í upphafi. En eftir útvíkkun þeirra gata, sem gerð var í Ed., held ég, að fáir sitji fastir í því, en flestir sleppi út um möskva þess og allir, sem virkilega hafa gert sig seka um brask með erlendan gjaldeyri, svartan markað og vöruokur. Ég vænti þess svo, að fá þetta upplýst af hæstv. ráðh.