21.04.1950
Neðri deild: 86. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1304 í B-deild Alþingistíðinda. (2064)
44. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdómur
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Mig langar til að bera fram brtt. við frv. Ein þeirra breytinga, sem ráðgert er, að verði á framkvæmd verðlagseftirlitsins, er sú að skipta um nafn á þeim embættismanni, sem kallaður hefur verið verðlagsstjóri, og á hann nú að heita verðgæzlustjóri. En mér finnst þessi breyting óeðlileg. Með samþykkt frv. á eigi að verða breyting á verksviði eða skyldum þessa embættismanns. Verksvið hans á að vera eins og það hefur verið. Skyldur hans eiga ekki að breytast neitt. Hið eina, er breytist, er það, hversu skipað verði í þetta embætti. Verðlagsstjórinn er núna skipaður af ríkisstj., en skv. þessu frv. á hann að vera skipaður eins og segir í 2. gr., þ. e.: Ýmis félagasamtök eiga að tilnefna hann. Ég hef ekkert á móti því, að gerðar séu till. um breytingu á skipun þessa embættismanns. En mér finnst það ekki geta réttlætt breytingu á embættisheiti hans, nema það megi teljast óviðunandi. En ég sé eigi, að heitið geti talizt óviðunandi, úr því að það gat staðið í l. 1943 í upphafi, og sé ég því ekki, að breytingin geti réttlætt nýja heitið. Þegar breytt er um heiti embættismanns, þá gefur það til kynna, að verksvið hans sé að breytast. Þar liggur villan. Mér finnst þess því gæta hér nokkuð, að frv. vilji láta meira yfir sér en efni standa til, og er ég þar sammála hv. 8. landsk. Hef ég enga trú á því, að frv. marki nokkur tímamót. Einstök ákvæði eru þó til bóta, svo sem um verðlagsdóm, og mun ég greiða atkv. með frv. En ég tek undir með hv. 8. landsk., að ég hef enga trú á, að af frv. hljótist þær endurbætur, er hæstv. ríkisstj. virðist gera sér vonir um.
Þessa skriflegu brtt. leyfi ég mér svo að afhenda hæstv. forseta og óska þess, að afbrigða verði leitað.