25.04.1950
Neðri deild: 88. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (2087)

44. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdómur

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Mér skildist hv. 8. landsk. þm. leggja nokkuð mikið upp úr þessum brtt. sínum, þannig að frv. mundi verða — og málið sennilega allt — miklu meira og stærra, ef brtt. hans næðu fram að ganga. Eftir hans till. á að skipa einum manni fleira í dóminn, og á því ætti það þá að byggjast, að dómurinn yrði miklu sterkari og réttlátari í dómum sínum. Það má vera, að hann yrði það eitthvað. En hæpið tel ég nú, að það munaði miklu. — Svo er það viðvíkjandi saumastofunum, sem hann leggur mjög mikið upp úr og hans 1. brtt. er um. Hv. 8. landsk. þm. segir, að þar fari fram nokkurs konar keðjuverzlun og að ákvæði frv., eins og það er, nægi ekki til þess að koma í veg fyrir slíkt. En ég ætla, að 4. gr. frv. segi til um það, að það eigi að vera eðlilegt verðlag á þessum hlutum, sem þarna eru seldir. Og margar gr. frv. byggjast á því, að fullra gagna sé leitað um þessi mál og að ekki sé höfð meiri álagning á vörur en brýna nauðsyn ber til og réttlátt er. Og ef þess vegna ætti að bæta inn í því ákvæði eftir till. hv. 8. landsk. í sambandi við 6. gr., þá ættu að koma ákvæði um miklu fleiri staði en hann gerir ráð fyrir í brtt. sinni, því að vissulega hefur eitthvað slíkt átt sér stað hjá fleiri fyrirtækjum en saumastofunum. En mér virðist hv. 8. landsk. þm. hafa mikinn kunnugleika á því, að þetta hafi gengið mjög óeðlilega til og að þetta hafi verið mjög aðfinnsluvert, og mig furðar satt að segja mjög á því, að fyrrv. hæstv. forsrh. skuli ekki hafa hafizt handa, meðan hann var ráðh., um lagfæringu á slíkum málum, ef hann hefur haft hugboð um, að þannig væri ástandið í þessum efnum eins og hann telur að sé. Og ég vil vona, þó að það hafi verið skuggi yfir viðskiptunum hér hjá okkur, sem hefur sennilega verið í ekki litlum stíl, þá rofi einhvern tíma til í því efni, þannig að menn geti lagt eitthvað upp úr því, að heiðarleik verði komið á í viðskiptum og honum við haldið.

Hv. 8. landsk. þm. gerir mjög lítið úr þessu máli yfirleitt, sem hér liggur fyrir, og telur nú, að það hafi verið smátt upphaflega, en þó sé það orðið nú enn smærra. En ég vil segja að eftir þessar breyt., þó að samþ. væru brtt. þessa hv. þm., virðist mér, að málið stækkaði ekki mikið. Og mig undrar það hjá hv. þm., eins og mér virðist hann tala um þessi mál, að hann skuli þá ekki hafa borið fram róttækari till. til lagfæringar á þessum málum, þ. e. a. s. róttækari frá sínu sjónarmiði. Ég ætla þess vegna, að hvort sem þessar brtt. hv. 8. landsk. þm. væru samþ. eða samþ. ekki, mundi fyrirferð og kjarni þessa máls verða líkur og ekki aukast mikið, þó að brtt. væru samþ.

Þá fannst hv. 2. þm. Reykv. (EOl) mjög á skorta hjá mér, að ég vildi ekki fallast á hans brtt. og sérstaklega þar sem við töldum, að efni þeirra fælist í frv. og bæri verðlagsstjóra skylda til þess að hafa aðgæzlu á þessum málum. Ef á það er nú litíð, hvað í hans till. felst, og litið er til þess hins vegar, sem í frv. felst, þá hygg ég nú, að það beri ekki mikið á milli. Hv. 8. landsk. þm. minntist á svarta markaðinn, og það er eiginlega það eina, sem minnzt er á í brtt. hans. En eins og frv. er byggt upp, þá ætla ég, að fullkomlega felist í því það, að þessi umboðsmaður eigi að hafa þær gætur í sambandi við slík viðskipti, að þau eigi sér ekki stað. Hann á að afla sér hvers konar upplýsinga um allt, sem varðar viðskipti, sem þetta verðlagseftirlit nær til, og gefa skýrslu um það til fjárhagsráðs. — Ég ætla ekki að rekja efni einstakra gr. frv., því að hv. þm. hafa þetta fyrir sér. Svo að það, sem hv. 2. þm. Reykv. er með, er ekki nein nýsmíði á frv., það felst vissulega í því. En það er náttúrlega öðru máli að gegna, sem líka kom fram í ræðu hv. þm., ef hann leggur ekkert upp úr réttarfarinu, bæði rannsókn mála og meðferð dómstóla á málum, þó að skýr lagaákvæði séu um það, hvað gera skuli, þá náttúrlega horfir málið öðruvísi við frá hans sjónarmiði. En getur þá hv. 2. þm. Reykv. ætlazt til þess, að úr þessu yrði bætt, þó að hans brtt. væru samþ.? Mundi það nokkuð skera úr um það, að á eftir geti menn ekki vanrækt og hylmað yfir og látið ógert það, sem gera á, og gert þá það, sem ekki á að gera, eftir hans skilningi? Vitaskuld getur dómstólunum yfirsézt, dómurum, eins og öðrum mönnum. En það vil ég þó vona, að dómarar vandi svo ráð sitt í starfi sínu, að venjulega verði þeirra niðurstöður réttar og alltaf eftir þeirra skoðun og þekkingu, jafnvel í því, sem maður kynni að telja, að þeim hefði missýnzt, þannig að þeir hefðu þá frá sínu sjónarmiði skoðað það rétt, sem er þeirra niðurstaða.

Hv. 2. þm. Reykv. gerði fyrirspurn til mín um það hvort samningar hefðu orðið á milli Framsfl. og Sjálfstfl. um meðferð málsins í hv. Ed. Þeirri spurningu get ég ekki svarað, hvort það hefur komið til. Við höfum fyrir okkur þann búning málsins eins og það kom fyrst fyrir þingið og einnig eins og það kom frá hv. Ed. Og þó að frv. hafi verið breytt í hv. Ed., hygg ég, að það þurfi fyrir það ekki að vera lakara en það var. Sumar breyt. voru nauðsynlegar leiðréttingar, sem gera þurfti á málinu. En mér er ekki kunnugt um neina samninga um þetta efni, sem gerðir hafi verið. Ég hygg, að meðferð þessa máls í hv. Ed. hafi verið eins og venja er í þinginu um mál, að það er tekið upp í frv., sem eftir athugun þykir heppilegra og fara betur.

Þá var hv. 2. þm. Reykv. svo gamansamur, þegar hann talaði um starf dómara í þessum dómi, að hann spurði, hvort ætti að dæma eingöngu eftir þessum lögum fyrst eftir að þau væru samþ., en eftir að umræðurnar um frv. á Alþ. væru prentaðar, hvort þá ætti að dæma um verðlagsmál eftir lögunum og umræðunum um þau. Menn eru nú læsir á fleira en prent, og þessi hv. þm. veit vel, að ef ákvæði laga eru ekki nógu ljós og skýr, er leitað í grg. og nál. og til frekari glöggvunar í umr., sem fram hafa farið um málin á þingi, og þetta er hægt að gera, þótt umræðupart þingtíðindanna sé ekki búið að prenta.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frekar. Viðvíkjandi þeim glöggleika, sem hv. 2. þm. Reykv. telur, að þurfi að vera á frv., þá ætla ég, að það komi mjög greinilega fram í ýmsum gr. frv., hvert verkefnið er og hvað þessum starfsmönnum ber að gera og hvaða sjónarmið þeir eigi að rækja, sem sé að halda. uppi heilbrigðu verðlagi og heilbrigðum viðskiptum, en um annað og meira fjalla ekki till. þessa hv. þm. Og þetta getur hann séð í nokkrum gr. frv., þó að þar sé að vísu hvergi beinlínis talað um svartan markað, en maður skyldi halda, að svartur markaður væri ekki talinn með heilbrigðum viðskiptum.