25.04.1950
Neðri deild: 88. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1327 í B-deild Alþingistíðinda. (2096)

44. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdómur

Finnur Jónsson:

Ég benti á það sem dæmi um flaustursverk í undirbúningi frv., að III. kafli fjárhagsráðsl. skuli hafa verið felldur niður. Hinu er ómótmælt af hv. frsm., að í II. kafla þeirra l. eru ákvæði, sem stangast á við ákvæði þessa frv. Nú er rétt, að nýrri l. gildi, en stangist þau á við eldri l., þá er það óvandvirkni, fyrst l. er breytt á annað borð, að gera þau eigi fullnægjandi úr garði, svo að þau séu í fullu samræmi við eldri ákvæði.

Hv. 1. þm. Árn. varð ekki við þeim tilmælum mínum að nefna einhver fleiri dæmi en saumastofuálagninguna, sem mættu koma undir það, að ekki mætti leggja á nema eina álagningu, þótt hann hins vegar segði, að það væri ýmislegt fleira, sem gæti komið undir það. Mér finnst hann þar hafa sett ljós sitt undir mæliker og þykir fyrir, ef menn vita um ráð gegn dýrtíðinni, en vilja eigi segja frá þeim.

Varðandi ummæli hv. þm. um trúnaðarmennina, þá er það óhrekjanlegt, að eftir eldri l. er verðlagsstjóra skipað að hafa trúnaðarmenn um land allt. En skv. því, sem Framsfl. kallar hliðarráðstafanir við gengislækkunarl. þá á verðgæzlustjóra ekki að vera það skylt. Nú mega það vera samningar milli stjórnarflokkanna, að verðlagseftirlitið minnki nokkuð. Ég hef þó talið, að það þyrfti að auka, en hér er sannarlega dreginn réttur af verðlagsstjóra, skyldan um að hafa trúnaðarmenn annars staðar á landinu en honum sýnist. Ef hv. frsm. er svo viss um, að í frv. felist skipun um að hafa trúnaðarmenn um land allt, sem hann segir, þá ætti að vera óhætt að samþykkja brtt. En því mótmæli ég, að verðgæzlustjóra sé lögð skylda á herðar að hafa trúnaðarmenn annars staðar, en honum sjálfum sýnist.

Hv. frsm. hefur enn eigi treyst sér til að lýsa því yfir, að hann telji fjárhagsráð hafa möguleika til að sjá um verðlagseftirlit á eigi lakari hátt en viðskiptanefnd áður, af þeim ástæðum, að málið hefur eigi verið sent fjárhagsráði til umsagnar, sem ég er viss um, að hefði þá mótmælt því. Það gefur til kynna, með hverjum huga frv. var flutt og barið í gegn, að hv. frsm. minntist á í þessu sambandi, að talað væri nú um fækkun starfsmanna þar, — þó að e. t. v. mætti gera það. Ég skal ekki segja, nema það væri hægt. En það sýnir e. t. v. betur en allt annað alvöruna í baráttunni gegn dýrtíðinni, ef byrja á á því að skera niður verðlagseftirlitið.