25.04.1950
Neðri deild: 88. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1331 í B-deild Alþingistíðinda. (2110)

44. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdómur

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég tel það varhugavert að tefja þetta mál, og hefði verið þörf á því, að hv. þm. væru samþykkir skjótri afgreiðslu þess. Ég hef ákveðið að greiða atkvæði á móti öllum brtt. (FJ: sem bæta frv.) við frv., sem eru til þess að tefja afgreiðslu þess, án þess að vera til bóta, og til þess að stuðla að því, að það nái gildi á þessum degi, segi ég nei.

Brtt.551,2 felld með 18:9 atkv.

— 551,3 tekin aftur.

Frv. samþ. með 18:1 atkv. og afgr. sem lög frá Alþingi (A. 588).