04.05.1950
Neðri deild: 95. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1335 í B-deild Alþingistíðinda. (2137)
139. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins
Frsm. (Pétur Ottesen):
Eins og getið er um í nál., sem sjútvn. stendur að, þá var hlutatryggingasjóður Bolungavíkur stofnsettur 1939. Þegar svo lögin um slíka sjóði voru sett 1943, var Bolvíkingum heimilað að starfrækja sinn sjóð áfram á grundvelli þeirra laga og njóta þess stuðnings, sem lögin ákváðu. Eins og kunnugt er var þessum l. svo breytt aftur á s. l. ári, og þá var ekki lengur um heimild að ræða, heldur ákveðið að stofna slíka sjóði. En í þessum sömu lögum var líka ákveðið, að greiðslur úr slíkum sjóðum eða bætur skyldu ekki hefjast fyrr en að ári liðnu frá gildistöku laganna. Nú öðluðust l. gildi í maí 1949, og þar af leiðandi hefst ekki starfstími sjóðsins fyrr en um sama leyti í ár, eða í þessum mánuði. En af þessu leiðir það, að auður tími verður í starfsemi tryggingasjóðs Bolvíkinga, þar sem þeir fá ekki styrk frá ríkinu á þessu ári, eða með öðrum orðum ekki fyrir þessa vertíð. Sjútvn. telur sanngjarnt, að brúað verði þetta bil, þ. e. á. s. að Bolvíkingar fái að reka sinn sjóð þetta ár á grundvelli eldri laga. Hins vegar munu þeir að sjálfsögðu fylgja nýju lögunum framvegis og því njóta styrks eftir þeim við síldveiðarnar í sumar. Brtt. n. felur þess vegna ekki annað í sér, en að bilið verði brúað, sem nýju l. hafa valdið, og þar með komið í veg fyrir, að þessi þáttaskipti felli niður nokkra starfsemi hjá Bolvíkingum, enda eiga þeir það fyllilega skilið vegna framsýni og dugnaðar í þessu máli.