06.02.1950
Efri deild: 50. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1343 í B-deild Alþingistíðinda. (2175)

106. mál, útsvör

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Hv. þm., sem er flm. þessa frv., mun hafa starfað í mþn. þeirri, er hafði endurskoðun útsvars- og skattal. með höndum. Hefði ég viljað heyra, hvað hin ýmsu sveitarfélög, sem ég geri ráð fyrir, að leitað hafi verið til um umsögn á málinu, hafi um þetta sagt. áður en flanað væri að setningu nýrra l. Eins og hér hefur komið fram, m. a. hjá hæstv. dómsmrh., þá halda menn, að þetta mál skipti helzt Reykjavík og nágrannasveitir hennar. Þetta er þó mikill misskilningur. Málið skiptir fjölda sveita, t. d. Hafnarhrepp í Austur-Skaftafellssýslu, þar sem eru viðlegubátar á vertíðinni, Siglufjörð, en þangað koma menn, sem hafa miklar tekjur á skömmum tíma, og þetta skiptir fyrst og fremst alla þá atvinnustaði, sem missa tekjur vegna aðkomumanna, sem eru þar hluta úr árinu, og fá hluta af útsvörum þeirra. Og þetta á einnig við um þá hreppa, sem menn koma frá. Þarf því að athuga málið. — Þá vil ég líka spyrja, hvaða réttlæti sé í því, að Hafnarfjarðarkaupstaður eigi að fá allt útsvar vitamálastjórans, sem er búsettur þar, en stundar atvinnu sína í Reykjavík. Eða tökum sem dæmi bankastjóra, sem á heima í nágrenni bæjarins, en vinnur í öðru sveitarfélagi, sem fær ekkert af útsvari hans. Slík dæmi eru líka til úti á landi. Ég er ekki viss um, að hætta eigi að skipta útsvörunum. Ég viðurkenni, að snúningur sé á þessu og vafamál, hvernig þetta eigi að gerast, og erfitt sé að segja, hvar lögheimili mannanna sé. Vegna þessa má ég segja hið sama sem á síðasta þ., held ég, þegar útsvarsl. voru til meðferðar, að eitt hið fyrsta, sem gera eigi, sé að fá skýrari ákvæði um, hvar lögheimili manna sé, enda eru hæstaréttardómar komnir um þetta. Er oft og einatt sama vafaatriðið með einmitt þessa menn, sem reynt er að fá upplýst um, hvar lögheimili eigi. Um þessa menn þarf því skýrari ákvæði í l. Þá er nýlega komin upp deila um, að ýmsir eru farnir að gera kröfur um skiptingu á útsvörum embættismanna milli sveitarfélaga. Nefnum t. d. lækni, er störfum gegnir í þrem læknishéruðum. Hann hefur full laun á einum stað, en á hinum tveim er hann settur, og þar fær hann hálf laun. Þá segja þau héruð: Hann er héraðslæknir okkar, og eigum við því rétt á hluta af útsvari hans. — Svo eru líka prestar, sem skipaðir eru á einum stað, en settir á öðrum stöðum. Þá koma hreppsfélögin, þar sem prestssetrið er ekki, og segja, að presturinn hafi hálf prestslaun hjá þeim og eigi þau því heimtingu á hluta af útsvari hans. Þetta hefur einu sinni komið fyrir áður, en núna eru til fleiri slík tilfelli. Ég veit, að þetta er oft vafamál. En hætta liggur í þessu og bætir lítið um. Á hinn bóginn er það mesti misskilningur, að þetta nái aðeins til Reykjavíkur. Þannig er ástatt í langflestum hreppum úti um land að einhverju leyti.