14.04.1950
Efri deild: 88. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1349 í B-deild Alþingistíðinda. (2181)
106. mál, útsvör
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég fyrir mitt leyti held því fram, að þær breyt., sem hér um ræðir, sé ekki hægt að gera á þessum tíma árs, nema að gera þá jafnframt fleiri. Nú erum við komnir í miðjan apríl. Í febrúar töldum við fram til skattsins og samvizkusamir oddvitar eru nú búnir að gefa út tilkynningar um kröfur hreppa sinna um greiðslur utanhreppamanna og hafa gert ráð fyrir kröfum annarra hreppa á skattgreiðendur í viðkomandi hreppi. Ég sá t. d., að Seltjarnarneshreppur gerir ráð fyrir, að menn þar búsettir greiði 100 þús. til annarra sveitar- og bæjarfélaga, en með þessu er verið að eyðileggja meira og minna af þeim ráðstöfunum, sem þessir hreppar eru búnir að gera. Nú er það ófrávíkjanleg regla, að kröfurnar verði að vera komnar áður en útsvari er jafnað niður. Það hefur verið gert ráð fyrir þeim og tillit hefur verið tekið til þeirra og ráðstafanir gerðar til þess að standa við kröfur annarra hreppa. Sem sagt, það er víðast hvar, þar sem samvizkusamir menn eru annars vegar, búið að gera þessar ráðstafanir. Það eru bara kaupstaðirnir, sem gera þetta eftir dúk og disk og alltaf eru á eftir með útreikning og niðurjöfnun útsvaranna og þó sérstaklega Reykjavík. Þess vegna er ekki hægt að gera þessa breytingu núna. Það er ekki hægt að gera hana nema seint á árinu, þannig að oddvitarnir geti fengið að vita um hana áður en þeir eiga að vera búnir að gera áætlanir um tekjur og gjöld hreppsins og jafna niður útsvörunum. Ef það á að breyta þessu nú, þá þarf að setja bráðabirgðaákvæði um það, þar sem búið er að jafna niður, og önnur um það, þar sem verið er að ljúka því, en mér er ekki ljóst núna, hvernig það ákvæði ætti að vera, en ég veit, að ef það verður ekki gert, þá setjum við allt í hreina vitleysu. Við skulum t. d. taka Seltjarnarneshreppinn. Þá setjum við hann í þá aðstöðu, að sú áætlun, sem hann hefur ger.t um tekjuvon hreppsins og reynt að fullnægja við niðurjöfnun útsvara, væri fallin niður. Ég var seinast í gær að skipta útsvari á milli 4 hreppa, þar sem skali Reykjavíkur var notaður deildur með tveimur, svo að af því geta menn séð, hve mikill mismunur er á skölunum. Hins vegar er það svo, að ég tel það augljóst, að hlutur sveitarfélaga, 1/3, sé of lítill, og get ég að því leyti fallizt á, að það ákvæði sé fellt niður, en bara ekki á þessum tíma árs, því að það yrði allt of miklum erfiðleikum bundið og veldur ranglæti. Það verður að gera þá breytingu seinast á árinu.
Annað í þessu sambandi, sem við verðum að gera okkur ljóst, er það, að dómendur hafa fært sig meira og meira í þá átt að viðurkenna útsvar í þeirri sveit þar sem atvinna er. Það er nýlega genginn dómur um þetta efni, sem sannar þetta enn betur. Það var piltur, sem atvinnu hefur stundað í Reykjavík, en hann var búsettur hjá foreldrum sínum í Hafnarfirði. Stundum vann hann hér í Reykjavík og stundum suður í Hafnarfirði, en núna síðustu 2 árin mest í Reykjavík. Fyrra árið er útsvarinu skipt, en annað árið er útsvarið lagt á í Reykjavík, og dómarinn kveður upp þann úrskurð, að hann eigi heima í Reykjavík og eigi þar að greiða útsvar sitt. Og þannig er það, að dómar falla nú meira og meira í þessa átt. Hann er dæmdur til í þessu tilfelli, þessi piltur, að telja sig eiga lögheimili í atvinnusveit, án tillits til þess, hvað hann sjálfur vill. Það, sem fyrst og fremst vantar, eru ákvæði um heimilisfesti og hvað til þess þarf að eiga lögheimili. Ef till. meiri hl. verður samþ., þá vil ég benda á, að það er oft ekki létt verk eða illmögulegt að vita mismuninn á þunga útsvaranna í einstökum hreppum, vegna þess, hve mismunandi skalarnir eru, sem notaðir eru. T. d. voru útsvör, sem við vorum með í gær, reiknuð þannig, að skalinn fyrir Reykjavík var notaður deildur með tveimur, en daginn áður vorum við með önnur útsvör, þar sem notaður var hærri skali, en í Reykjavík. Þess vegna er það hæpið, að skattanefndir leggi alltaf á mismuninn, eins og þær eiga að gera eftir nýju gr., sem væntanleg er á eftir 12. gr.; það er hæpið, að það komi rétt fram á þennan hátt. Það kynni ef til vill að vera hægt að nota formúlu Þorsteins Þorsteinssonar hagstofustjóra, en það hefur ekki verið gert. Ég segi þetta bara af þeirri reynslu, sem ég hef fengið af þessu starfi undanfarin ár. Annars er það nú svo, að útsvarsskiptingin hefur farið mjög í vöxt, en aðeins lítið brot af henni kemur til ríkisskattan., en það hefur þó aldrei verið eins mikið og nú í ár. Ég held, að það sé nauðsynlegt að breyta ákvæðum l. þannig, að annaðhvort sé hlutur heimilissveitarinnar aukinn eða skerpt sé á lögunum um heimilisfesti. En að breyta þessu eins og hér er gert ráð fyrir um þetta leyti árs tel ég ekki vera hægt, það er ekki forsvaranlegt, því að með því er verið að koma aftan að hreppum og oddvitum þeim, sem samvizkusamastir eru. Ég sé það, að einn oddviti, sem hér á sæti, hristir höfuðið, en ég skal segja honum það, að um 60 hreppar eru þegar búnir að jafna niður hjá sér, svo að þetta er ekki sagt út í bláinn, þó að nálægir hreppar dragi dám af Reykjavík að þessu leyti, sem er hreint ekki til fyrirmyndar.