14.04.1950
Efri deild: 88. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (2186)
106. mál, útsvör
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Hv. 4. þm. Reykv. (HG) sagði, að ég hefði gefið sér tilefni til að mæla gegn því, að skipting hreppa færi fram í landinu, eins og venja hefur verið til undanfarin ár. Ég gaf ekkert tilefni til þess, að þm. héldi, að ég væri með skiptingu hreppa í landinu almennt. Síður en svo. Á orðum mínum var ekki hægt að skilja, hvort ég væri með því eða móti. Mér fannst óviðeigandi, að bæjarráð Reykjavíkur skyldi setja fram sem kröfu í sambandi við niðurfellingu þeirrar lagagr., sem hér um ræðir, að tveir hreppar, sem hafa skilið, skuli sameina sig aftur. Þau ummæli mín gáfu þm. ekkert tilefni til þess að opinbera mína skoðun í því máli, nema síður sé. Ég er nefnilega sammála hv. þm. um það, að mjög sé óheppileg.t að vera oft að skipta hreppum. En ef honum er það eins mikið áhugamál og virtist af ræðu hans, sé ég ekkert því til fyrirstöðu, að hann beri fram hér tillögur til breyt. á l. eða lagafrv. um það, hvaða skilyrði skuli þurfa að uppfylla til þess, að hreppar verði sjálfstæðir. Svo að þessi ummæli hv. 4. þm. Reykv. eru á algerðum misskilningi byggð.
Annars stóð ég aðallega upp vegna ræðu hv. 1. þm. N-M. (PZ). Hann sagðist ekki vilja svara skætingi, sem ég hefði verið með í garð ríkisskattanefndar. Hér er ekki um neinn skæting að ræða í garð ríkisskattanefndar. Þó að þessi þm. hafi lengi átt sæti í ríkisskattanefnd, hefur hann ekki einu sinni komizt svo hátt að verða formaður n., svo að ekki er hægt að kenna honum um þá hluti, sem þar hafa aflaga farið. En ég benti á, að svo virtist sem þessi stofnun hefði þetta vald að lögum, og þess vegna yrði að breyta l. til þess að svipta hana þessu valdi, til að traðka á rétti skattþegnanna, eins og hún hefur gert. Ég hef ekki neitt að kvarta undan störfum hans sem embættismanns í n., en lögin, útsvarsl. í sambandi við þetta mál, eru þannig, að skattþegnarnir eru algerlega réttlausir. Þessir menn hafa viðurkennt í mín eyru, að þeir veigri sér mjög við að raska nokkurn tíma verulega úrskurðum sveitarstjórna um útsvör, þar sem þeir séu ekki nægilega kunnugir þeim málum. En til hvers er þá verið að áfrýja þessum málum? Nei, það er sannarlega nauðsynlegt, að hið bráðasta verði tekin upp breyt. á þessum l., sem tryggi það, að skattþegnarnir séu ekki svo gersamlega réttlausir gagnvart skattanefndum eins og nú er, sem í flestum tilfellum verða að skoðast sem hreinir rukkarar fyrir ríkissjóð og sveitarstjórnir.
Að hinu fór ég svo að brosa, þegar hv. 1. þm. N-M. fór að tala um, að þetta væri mottó sjálfstæðismanna, sem ég hefði sagt, að þegar menn hefðu fengið lögfest einhver réttindi, strituðust þeir við að komast hjá að láta þau af hendi. Hefur 1. þm. N-M. gleymt allri baráttunni um kjördæmaskipunina, öllum þeim bruna, sem brunnið hefur í huga framsóknarmanna fyrir að láta af hendi þau forréttindi, sem þeir voru búnir að halda árum saman í landinu? Það væri margt öðruvísi í þessu landi, ef þessi hatursbruni út af því að hafa orðið að láta af hendi þessi réttindi brynni ekki enn þá í huga þeirra. Síðan hafa þeir ekki fengizt til að taka vel á neinu máli. Og síðan kemur þessi þm. og segir, að Sjálfstfl. vilji halda hér í einhver sérréttindi.
Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta meir að þessu sinni. Ég mun halda mig við að samþykkja frv. óbreytt, en vera á móti þeirri brtt., sem fyrir liggur, því að ég tel hana vera til hins verra, en ekki betra, verði hún samþykkt.