21.04.1950
Efri deild: 91. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1359 í B-deild Alþingistíðinda. (2191)

106. mál, útsvör

Frsm. meiri hl. (Hannibal Valdimarsson) :

Herra forseti. Það er ekki nein ástæða til að fjölyrða um þetta mál, það var rætt rækilega við 2. umr., en það hefur verið lögð fram af meiri hl. brtt., sem liggur fyrir á þskj. 555. Það er ekki nein efnisbreyt., aðeins til að taka nánar fram um skilning á málslið brtt., en þessi málsl. hljóðar svo: „Heimilissveit er skylt að innheimta útsvarsauka þennan, samkv. úrskurði yfirskattanefndar, og standa atvinnusveit skil á honum.“ Það var ætlun meiri hl. n., að það væri heimilissveit, sem legði þennan útsvarsauka á, og þótti okkur því réttara, til að taka af öll tvímæli, að útiloka þann hugsanlega skilning, að atvinnusveit gæti lagt útsvarsauka á, og flytjum við því brtt. um þetta til þess að orðalag sé óumdeilanlegt og þannig, að ekki verði með nokkru móti misskilið, og leggjum til, að aftan við orðið „yfirskattanefndar“ komi: í umdæmi heimilissveitar. — Áfrýjunarréttur til yfirskattan. er sá sami og nú er í l. viðvíkjandi kærum út af útsvörum, þó að þetta sé samþ., og áfrýjunarréttur til ríkisskattan. er óbreyttur eftir sem áður.