04.05.1950
Efri deild: 100. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1364 í B-deild Alþingistíðinda. (2203)

106. mál, útsvör

Bernharð Stefánsson:

Ég finn ástæðu til að þakka allshn., að hún hefur haldið fund um þetta mál á milli umræðna og meira að segja kallað mig á hann til viðræðna. Það náðist nú að vísu ekki samkomulag á milli mín og n. Ég benti henni á, að þar sem lögð væri svo mikil áherzla á að fá afnumda skiptingu útsvara, væri rétt að leyfa eina beina álagningu á atvinnurekstur í viðkomandi sveit og hætta svo að skipta útsvörum einstaklinga, sem atvinnu stunda. N. hefur ekki viljað fallast á þetta. Og þar sem það liggur beinlínis fyrir, eftir að útsvarsálagning ásamt skattalöggjöfinni hefur verið í endurskoðun, að heildarlöggjöf fari fram á næsta þingi, þá sé ég ekki ástæðu til að taka hér upp stórfelldar brtt. við frv., en á hinn bóginn mun ég þó ekki álíta rétt, að þetta frv. gangi fram nú, þar sem þessi allsherjar endurskoðun l. verður væntanlega gerð, og mun því greiða atkvæði á móti frv. og láta að öðru leyti niður falla umræður um það af minni hálfu eftir þessa yfirlýsingu.