10.02.1950
Efri deild: 52. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1371 í B-deild Alþingistíðinda. (2226)

110. mál, sala nokkurra jarða í opinberri eigu

Landbrh. (Jón Pálmason):

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir, hreyfir við allverulegu vandamáli og gömlu deilumáli hér á Alþ., sem snertir sölu opinberra eigna. Fyrir nokkrum árum flutti ég frv. um það í hv. Nd. að heimila almennt sölu á þjóð- og kirkjujörðum, á sama veg eins og hér áður var og með þeim sömu skilyrðum, sem þá giltu. Þannig að undanteknar væru aðeins þær jarðir, sem viðkomandi sýslunefnd eða bæjarstjórn teldi, að nauðsyn bæri til að halda í eigu hins opinbera vegna væntanlegra félagslegra starfa, sem jarðirnar gætu verið undirstaða undir. Þessu frv. var snúið í það, sem nú er í lögum, að það væri heimilt almennt að selja þessar jarðir, ef þær væru um leið gerðar að ættaróðulum. Og þannig er þetta nú. Sem sagt, því var snúið á þessa leið, að það væri ekki nein heimild fyrir ríkisstj. eða viðkomandi ráðh. að selja þessar opinberu jarðir nema því aðeins, að þær væru gerðar að ættaróðulum. En reynslan af þessu hefur orðið sú, að það hafa komið í ljós allmiklir annmarkar og árekstrar í sambandi við þetta. Og í tilefni af því er nú verið að samþ. lög í dag til þess að greiða þarna nokkuð fyrir kaupendum þessara jarða með því að gera þeim rýmra um að veðsetja þær, til þess að geta byggt upp á þeim. Því að samkv. l. var það áður svo, að hlutaðeigandi ábúendur höfðu engin skilyrði til þess að geta fengið lán eins og aðrir bændur til þess að byggja upp á þeim eins og nauðsyn ber til. Nú var þetta tekið fyrir í vetur í nýbýlastjórn, og þaðan hefur runnið það frv., sem hefur legið hér fyrir Alþ. að minni tilhlutun og er víst um það bil að verða að lögum. En þó að þetta sé gert og þetta bæti mikið úr um aðstöðu þeirra bænda, sem þarna eiga hlut að máli, þá eru samt sem áður nokkrar hömlur í sambandi við það, að það sé skylda viðkomandi manna að gera jörðina að ættaróðali, og það takmarkar það, að menn, sem búa á ríkisjörðum, kaupi þær og stofni til þeirra nytsamlegu framkvæmda og umbóta á jörðunum, sem þörf er á. Nú skilst mér eftir þessu frv., að ætlun hv. flm. sé sú, að hann geri ráð fyrir, að vegna þessara ákvæða flytji hann sitt frv., með tilliti til þess, að það sé undanþága frá þessu ákvæði. Og ég get vel skilið, að sá sé hans skilningur á þessu, því að væri það ekki, þá væri frv. óþarft, vegna þess að ríkisstj., hver sem hún er, hefur heimild til þess að selja viðkomandi mönnum jarðirnar án þess að um það séu sett nokkur sérstök lög. Þess vegna er það, að ef till. hv. 1. þm. N-M. verður samþ., að í þetta frv. verði bætt, að þessar jarðir, sem hér er um að ræða, verði jafnhliða gerðar að ættaróðulum, þá er frv. um leið orðið alveg óþarft.

En út af því, sem hv. 1. þm. N-M. veik að yfirstjórn þessara opinberu jarða, þá er það alveg rétt, að nú heyra þær undir tvö ráðuneyti, sem er að sumu leyti óheppilegt. Þjóðjarðir og jarðakaupasjóðsjarðirnar heyra undir landbrn., eins og eðlilegt er, en kirkjujarðirnar heyra undir kirkjumrn. Og það er rétt hjá hv. þm., að það hefur ekki verið tekin ákvörðun um það, undir hvaða ráðuneyti kristfjárjarðirnar heyri. Þó mun eðlilegast að telja, að þær beri að láta fylgja að þessu leyti kirkjujörðunum eins og hefur verið frá fornu fari. En um sölumöguleikana gilda, eins og hv. þm. sjálfsagt flestir vita, sömu lög um kirkjujarðir, þjóðjarðir, og jarðakaupasjóðsjarðir. En meinið er, í sambandi við það, hvað ríkið á mikið af jörðum, að það hafa ekki verið mögu1eikar til þess eða ekki vilji hjá hæstv. Alþingi að leggja fram nægilegt fjármagn til að byggja upp á þessum jörðum og gera þær sambærilegar við það, sem eignarjarðir eru, sem eru sæmilega setnar. Útkoman er því sú, að á ríkisjörðunum er yfirleitt verr búið, en á hinum, vegna þess að hlutaðeigandi menn leggja minna kapp á að leggja í framkvæmdir á þeim en ella mundi, ef þeir ættu jarðirnar sjálfir. Ég held þess vegna, að það sé í samræmi við þá skoðun, sem fram kom í mínu frv. fyrir nokkrum árum, að það væri eðlilegt að lögfesta, að þessar jarðir megi selja án þess skilyrðis, sem nú er í gildi, því að þá mundi komast á betri búskapur á þessum jörðum, en er. Ef það fæst ekki, sem mikil tregða er á og meiri hluti Alþ. hefur verið á móti, þá verður fyrr eða síðar að ganga lengra fram í því að leggja fram fé til þess að byggja upp á þessum jörðum og gera þær byggilegri, en nú er, því að við skulum vona, að það haldi ekki áfram sú hrunstefna, að ég ekki segi helstefna — að sveitirnar séu smalaðar að fólki og það fari meir og meir í þéttbýlið, þar sem maður hefur enga tryggingu fyrir, að það geti haft framtíðaratvinnu.

Ég skal svo ekki fara um þetta miklu fleiri orðum, en vænti þess, að hv. landbn., sem vafalaust fær þetta mál til meðferðar, taki það til athugunar, hvort ekki sé nú tími til þess kominn, eftir þá reynslu, sem fengin er á eign ríkisins á jörðum, að gefa heimild til þess að selja þær, án þess að þau skilyrði fylgi, sem nú eru í lögum.