10.02.1950
Efri deild: 52. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1374 í B-deild Alþingistíðinda. (2228)
110. mál, sala nokkurra jarða í opinberri eigu
Landbrh. (Jón Pálmason) :
Herra forseti. Aðeins örfá orð út af því, sem hv. flm. sagði, að það mundi vera misskilningur, að þetta frv. væri óþarft, ef inn í það væri sett ákvæði um, að þessar jarðir yrðu við sölu gerðar að ættaróðulum. Ég vil vekja athygli á því, að hér fyrir nokkrum árum lá fyrir hverju þingi meira eða minna af frv., sem voru hliðstæð þessu., og gengu þau hér deild úr deild, vegna þess að það var verið að heimila sölu á þessari og þessari jörðinni. En þetta var áður en lögin voru sett um að heimila almennt sölu á opinberum eignum með því að þær jarðir, sem seldar væru frá ríkinu, yrðu gerðar að ættaróðulum. Og hvort sem þetta frv. verður nú samþ. eða ekki, þá skal ég lofa hv. flm. því að taka það til athugunar næstu daga, ef ég verð áfram í stjórn, hvort ég vil ekki ganga að því að selja þessum mönnum jarðirnar, ef þeir hafa skjöl í höndum um, að þeim sé leyfilegt að kaupa þær, án þess að samþ. verði lög um þetta frá Alþ. Hitt getur verið, að sérstöku máli sé að gegna um þá eyðijörð, sem þarna er um að ræða.