07.03.1950
Efri deild: 69. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1392 í B-deild Alþingistíðinda. (2242)

110. mál, sala nokkurra jarða í opinberri eigu

Bernharð Stefánsson:

Virðulegi forseti. Mér þótti síðasta ræða hv. frsm. dálítið undarleg. Hann sagði, að ég hefði ekki heyrt fyrri ræðu hans, en þeirri ræðu svaraði ég allýtarlega í fyrri ræðu minni. (PZ: Ég hef haldið þrjár ræður.) Hitt er rétt, að ég heyrði ekki kafla úr næstsíðustu ræðu hans, er hann talaði um Fagranes. Ekki veit ég, af hverju hann heldur, að ég vilji ekki ræða við n. Ég fór fram á frestun og tók fram, að ég óskaði eftir breyt., ef till. n. yrðu samþ. Ég vil gjarnan hafa samráð við n. um breyt., og ég óska eftir að koma á fund n., ef till. hennar verða samþ., til þess að reyna, hvort ekki er hægt að ná samkomulagi varðandi sölu Fagraness. Hvað snertir Stærra-Árskóg og Syðri-Bakka veit ég, að ekki er hægt að ná samkomulagi um það, og þess vegna er ekki ástæða til að fresta atkvgr. um þær till.